30. júlí, 2009 - 12:25
Fréttir
Hvað verður alltaf um hinn sokkinn eftir þvott? Sokkaskrímslið ógurlega skartar sínu fegursta á Ráðhústorgi á Akureyri kl. 13,
laugardaginn 1. ágúst og gengur sem leið liggur eftir göngugötunni upp í Listagil. Jonna í samvinnu við Saumakompuna hefur hannað búninginn
sem Anna Gunndís klæðist úr hinum sokknum.