"Þetta er voru nánast örugglega vinir okkar af Pollinum," segir Hreiðar Þór Valtýsson sjávarlíffræðingur og lektor við HA, í tilkynningu sem hann hefur sent fjölmiðlum. "Þó má vera að ævintýrinu sé ekki alveg lokið þar sem tilgangur leiðangursins var að merkja hrefnur með gerfihnattamekjum, tækifærið var því notað til að koma einu slíku merki í andarnefju. Ef þetta merki virkar þá verður vonandi hægt að fylgjast með ferðum þeirra áfram. Mér er ekki kunnugt um að andanefjur hafi verið merktar með þessum hætti áður og er þetta því mjög áhugavert. Við bíðum ennþá eftir niðurstöðum úr sýnum sem voru tekin úr andanefjunni sem drapst," segir Hreiðar ennfremur.
Hann segir að ekkert hafi frést meira af hnúfubökunum sem komu inn á Pollinn. "Ég hef orðið vitni af því tvisvar á síðustu 3 árum að hnúfubakar hafa komið inn á Poll, en í öllum tilfellum hafa þeir stoppað mjög stutt við. Það eru þó ágætar líkur á því að fleiri sjávarspendýr heimssæki Pollinn í vetur því þá fara heimsskautaselir oft að láta sjá sig þar. Þær selategundir sem ég veit til að hafi látið sjá sig á Pollinum síðustu vetur eru rostungur, kampselur, blöðruselur og hringanóri. Vonandi halda ísbirnirnir sig bara fjarri," segir Hreiðar.