ÁLFkonur standa fyrir Skuggum í Lystigarðinum

Ljósmynd: Agnes Heiða Skúladóttir, ÁLFkona
Ljósmynd: Agnes Heiða Skúladóttir, ÁLFkona

Í ellefta skiptið bjóða ÁLFkonur, í samvinnu við Lystigarðinn á Akureyri og LYST kaffihús, upp á ljósmyndasýningu við útisvæðið og veitingasöluna í garðinu. Sýninguna kalla þær Skuggar.

Að þessu sinni takast konurnar á við birtuskil ljóss og skugga og úr verða leyndardómsfullar og skuggalegar ljósmyndir.

Sýningin stendur frá 26. maí 2022 og stendur fram á vor 2023. Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.

ÁhugaLjósmyndaraFélag fyrir konur

ÁLFkonur er hópur kvenna með ljósmyndun að áhugamáli. Þær eru allar búsettar á Akureyri og í Eyjafirði og hafa starfað saman sem hópur frá sumri 2010. ÁLFkonur hafa haldið 31 ljósmyndasýningu víða um Akureyri, Eyjafjörð og í Glasgow Scotlandi.

Að þessu sinni eru þátttakendur : Agnes Heiða Skúladóttir, Berglind H. Helgadóttir, Gunnlaug Friðriksdóttir, Guðný Pálína Sæmundsdóttir, Halla S. Gunnlaugsdóttir, Helga H. Gunnlaugsdóttir, Hafdís G. Pálsdóttir, Helga Haraldsdóttir, Hrefna Harðardóttir, Inga Dagný Eydal, Kristjana Agnarsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Linda Ólafsdóttir og Margrét Elfa Jónsdóttir. Hægt er að fylgja ÁLFkonum Facebook og Instagram

Lystigarðurinn er opinn á virkum dögum kl. 8-22 og um helgar kl. 9-22.  


Athugasemdir

Nýjast