Aldur barna sem fá niðurgreiðslu verði hækkaður í 16 ár

Á síðasta fundi íþróttaráðs Akureyrar var tekið fyrir erindi, þar sem Samtaka, svæðisráð foreldra nemenda í grunnskólum Akureyrar, fer fram á að bæjaryfirvöld endurskoði afstöðu sína gagnvart niðurgreiðslum vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna með lögheimili í sveitarfélaginu. Óska þau eftir að aldur barna sem fá niðurgreiðslu verði hækkaður í 16 ár.  

Íþróttaráð samþykkti að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir starfsárið 2011.

Nýjast