03. desember, 2007 - 18:17
Fréttir
Slökkvilið Akureyrar hefur aldrei farið jafn mörg sjúkraflug og á þessu ári, frá því að slökkviliðið hóf að sinna sjúkraflugi fyrir 10 árum. Alls hefur verið farið í 452 sjúkraflug það sem af er þessu ári en það er sami fjöldi og allt árið í fyrra. Séu bornir saman sömu mánuðir þá hefur verið farið í 40 fleiri flug en á sama tíma í fyrra. Að sama skapi hefur sjúklingum fjölgað í sjúkraflugi en á þessum tíma í fyrra höfðu verið fluttir 423 sjúklingar en nú hafa verið fluttir 490 sjúklingar það sem af er árinu. Þetta kemur fram á vef Slökkviliðs Akureyrar og þar segir einnig að sjúkraflug hafi verið stundað allt frá árinu 1997 en þá voru sjúkraflug 77 talsins. Fjöldi ferða jókst jafnt og þétt fram til ársins 2003 en þá voru þau orðin 271 á ársgrundvelli. Gríðarleg sveifla varð á milli 2005 og 2006 en þá fjölgaði ferðum sjúkraflugs um 138 á milli ára. Sú þjónusta sem veitt er í sjúkraflugi á vegum Slökkviliðs Akureyrar hefur gefið það góða raun að kostir flugsins eru ótvíræðir. Sjúkrahúsið á Akureyri sendir lækni með í þau flug sem óskað er og Mýflug sér um flugvélakost og flugmenn. "Það er ljóst að þetta ár verður enn eitt metárið í fjölda ferða og fjölda sjúklinga sem staðfestir nauðsyn þjónustunar í nútíma samfélagi," segir Þorbjörn Haraldsson slökkviliðsstjóri á vef slökkviliðsins.