Aldís Ásta Heimisdóttir til liðs við Skara HK í Svíþjóð

Aldís Ásta Heimisdóttir  á leið í atvinnumennsku i Svíþjóð  Mynd  ka.is
Aldís Ásta Heimisdóttir á leið í atvinnumennsku i Svíþjóð Mynd ka.is

Aldís Ásta Heimisdóttir skrifaði í dag undir tveggja ára samning við sænska efstu deildarliðið Skara HF sem er  i 150 km fjarlægð fra Gautaborg.   Aldís sem er uppalin hjá KA/Þór er algjör lykilmaður í liðinu hvort sem er í sókn eða vörn. Þá lék hún sína fyrstu A-landsleiki fyrir Íslands hönd í vetur og gerði sín fyrstu landsliðsmörk í leik gegn Sviss.  Aldís Ásta varð í öðru sæti á landinu yfir bestu leikmenn  OLIS deildar kvenna  í vetur samkvæmt   skráningu HB Statz sem heldur utan um tölfræði i handboltanum.  Liðsfélagi hennar í KA/Þór, Rut  Jónsdóttir varð i efsta sæti en það er öllur ella.

Á heimasíðu  KA segir  þetta m.a.

,,Þetta er virkilega flott skref fyrir Aldísi sem er 23 ára gömul en hefur þrátt fyrir það verið algjör lykilleikmaður í KA/Þór frá því hún tók sín fyrstu skref í meistaraflokki tímabilið 2014-2015. Hún hefur alls leikið 170 leiki fyrir KA/Þór og varð með liðinu Íslands-, Bikar- og Deildarmeistari auk þess að vera Meistari Meistaranna.

Auk A-landsleikjanna þá hefur Aldís leikið ófáa leiki fyrir unglingalandslið Íslands og lék meðal annars á HM í Ungverjalandi með U20 ára landsliðinu sumarið 2018. Árið 2016 hlaut Aldís Böggubikarinn en hann er veittur ungum iðkanda hjá KA sem skarar framúr bæði innan sem utan vallar.

Við óskum Aldísi til hamingju með samninginn og óskum henni góðs gengis. Aldís er gríðarlega metnaðarfull og leggur sig ávallt alla í verkefnið og við hlökkum til að fylgjast með henni í nýju og sterku umhverfi og höfum fulla trú á að hún haldi áfram að Skara framúr."

Til gamans  fylgir hér slóð á heimsíða SKARA HF það sem félagið tilkynir um komu Aldísar og tekur við hana stutt viðtal.

https://www.laget.se/SkaraHF/News/7020625/Islandsk-mittnia-till-Skara-HF


Athugasemdir

Nýjast