Ákvörðunin tekin til að standa vörð um innlenda framleiðslu og störf í matvælaiðnaði

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vill af gefnu tilefni koma á framfæri vegna umræðu um álit umboðsmanns Alþingis um úthlutun tollkvóta í landbúnaði.: "Eins og fram kom á fundi með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í morgun kom tillaga um að breyta útreikningi tollkvóta úr svokölluðum magntolli í verðtoll ekki frá ráðgjafanefnd stjórnarráðsins um tollamál."  

"Ákvörðun um þessa breytingu var tekin af undirrituðum í ljósi þeirra aðstæðna sem hér sköpuðust við bankahrun haustið 2008. Hún tekur mið af gjaldeyrishöftum sem í gildi eru, ástandi í atvinnumálum og fæðuöryggi landsmanna. Ákvörðunin var tekin í samræmi við samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna um að standa vörð um innlenda framleiðslu og störf í matvælaiðnaði," segir í yfirlýsingu  sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Nýjast