"Ákvörðun um þessa breytingu var tekin af undirrituðum í ljósi þeirra aðstæðna sem hér sköpuðust við bankahrun haustið 2008. Hún tekur mið af gjaldeyrishöftum sem í gildi eru, ástandi í atvinnumálum og fæðuöryggi landsmanna. Ákvörðunin var tekin í samræmi við samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna um að standa vörð um innlenda framleiðslu og störf í matvælaiðnaði," segir í yfirlýsingu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.