Akureyringar hvattir til að skipta út nagladekkjum

Mynd/Akureyri.is
Mynd/Akureyri.is

Akureyringar eru minntir á að notkun nagladekkja er almennt bönnuð á Íslandi frá og með 15. apríl til og með 31. október nema aðstæður gefi tilefni til annars. Akureyrarbær vill hvetja íbúa til að skipta út nagladekkjum sem allra fyrst er fram kemur á vef bæjarins.

„Nagladekk slíta malbiki hraðar en önnur dekk sem hefur í för með sér aukinn viðhaldskostnað. Þau stuðla líka að auknum eldsneytiskostnaði, valda óþarfa hávaða og draga úr loftgæðum. Akureyrarbær leggur sérstaka áherslu á að minnka svifryk og mengun sem af því stafar, til dæmis með því að bleyta götur, hefja sópun gatna fyrr á vorin og þvo þær í ríkari mæli. Hjálpumst að við að bæta loftgæði og minnka hávaða á Akureyri – tökum nagladekkin úr umferð," segir á vef bæjarins.


Athugasemdir

Nýjast