Akureyri og Samherji á meðal þeirra sem greiða mest

Ríkissjóður Íslands greiðir hæst opinber gjöld af lögaðilum, nærri 7 milljarða króna, samkvæmt álagningarskrá, sem ríkisskattstjóri hefur lagt fram. Íslandsbanki greiðir rúmar 3,95 milljarða og Reykjavíkurborg 1,83 milljarða. Akureyrarkaupstaður er í 10. sæti listans með rúmar 470 milljónir króna og Samherji er í 20. sæti með rúmar 236 milljónir króna.  

Álagning á lögaðila lækkar um 6% milli ára, þar af lækkar tekjuskattur um 15,9% en tryggingagjald hækkar um 2,28%. Þetta er fyrsta álagning ríkisskattstjóra á lögaðila eftir sameiningu skattumdæma sem varð um síðustu áramót. Fjöldi lögaðila á skattgrunnskrá á landinu öllu er 35.500. Alls sættu 12.461 lögaðilar áætlunum eða 35,10% af skattgrunnskrá. Til samanburðar sætti 11.532 lögaði áætlun við álagningu 2009 eða 34,5% af skattgrunnskrá. Alls nenur álagningin  fnemur álagningin alls kr. 78.417.313.106 krónum á félög og aðra lögaðila en á árinu 2009 nam hún  83.424.344.322 krónum. Þetta kemur fram á mbl.is.

Nýjast