Álagning á lögaðila lækkar um 6% milli ára, þar af lækkar tekjuskattur um 15,9% en tryggingagjald hækkar um 2,28%. Þetta er fyrsta álagning ríkisskattstjóra á lögaðila eftir sameiningu skattumdæma sem varð um síðustu áramót. Fjöldi lögaðila á skattgrunnskrá á landinu öllu er 35.500. Alls sættu 12.461 lögaðilar áætlunum eða 35,10% af skattgrunnskrá. Til samanburðar sætti 11.532 lögaði áætlun við álagningu 2009 eða 34,5% af skattgrunnskrá. Alls nenur álagningin fnemur álagningin alls kr. 78.417.313.106 krónum á félög og aðra lögaðila en á árinu 2009 nam hún 83.424.344.322 krónum. Þetta kemur fram á mbl.is.