Akureyri með nauman sigur á Varmárvelli í kvöld

Akureyri vann í kvöld nauman eins marks sigur á liði Aftureldingar, 25:24, er liðin mættust á Varmárvelli í kvöld í N1-deild karla í handbolta. Mosfellingar höfðu eins marks forystu í hálfleik, 12:11, en Akureyringar reyndust sterkari á lokasprettinum. Með sigrinum náði Akureyri fjögurra stiga forystu á ný á toppi deildarinnar.

Oddur Gretarsson var markahæstur í liði Akureyrar með 8 mörk en Haukur Sigurvinsson skoraði með fyrir Aftureldingu eða 7 mörk.

Akureyri hefur 18 stig í efsta sæti en Framarar eru í öðru sæti með 14 stig, eftir tíu marka sigur á HK í gær, sem hafa 12 stig í þriðja sæti. Afturelding hefur áfram tvö stig í sjötta sæti.

Nýjast