Það verður byrjað og endað á Ráðhústorginu og verða fjórar vegalengdir í boði, 21,1 km sem er hálft maraþon, 10 km hlaup með tímatöku og þriggja og fimm km hlaup án tímatöku. Keppnin í 21,1 km hlaupinu hefst kl. 10:00 en aðrar vegalengdir fara af stað kl. 11:00.
Hlaupadrottningin Rannveig Oddsdóttir á von á fjölda manns í hlaupið. "Það hafa verið um 300 keppendur í heildina undanfarin ár og það er búist við svipuðum fjölda í ár," sagði Rannveig. Íslendingar eru í miklum meirihluta í hlaupinu og þá er einnig búist við fjölda keppenda alls staðar að af landinu. "Þetta eru svona 99 prósent Íslendingar sem taka þátt og svo hefur komið eitthvað af fólki víðar af landinu síðustu ár og þá sérstaklega til að hlaupa lengri hlaupin og við búumst við því líka í ár. Heimamenn eru svo flestir í styttri hlaupunum," sagði Rannveig.