Akureyrarbær styrkir Háskólann á Akureyri

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri og Eyjólfur Guðmundsson rektor HA undirrituðu samn…
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri og Eyjólfur Guðmundsson rektor HA undirrituðu samninginn.

Undirritaður hefur verið samningur milli Akureyrarbæjar og Háskólans á Akureyri um stuðning bæjarins við Verkefnasjóð Háskólans á Akureyri. Verkefnasjóðurinn kemur í stað fjölda smærri styrkja sem áður voru veittir til skólans. Sjóðurinn veitir styrki til verkefna á ýmsum sviðum skólans, samstarfsstofnanna og nemendafélaga s.s. fyrir ráðstefnur eða meiriháttar samkomur, útgáfu- og kynningarstarfsemi og menningarstarf eða annað sem stjórnin telur falla að þessu reglum. Samningurinn gildir til loks árs 2019. Styrkfjárhæð er 2.000.000 milljónir  á samningstímanum. Úthlutun er í höndum þriggja manna stjórnar sem skipuð er af háskólaráði til tveggja ára í senn.

Nýjast