Akureyrarbær leitar að fólki í bakvarðarsveit

Mynd/Akureyri.is
Mynd/Akureyri.is

Akureyrarbær leitar liðsauka til að sinna störfum í velferðarþjónustu og vera hluti af bakvarðasveit til tímabundinnar aðstoðar. Í frétt á vef bæjarins segir að nú þegar heimsfaraldur Covid-19 gengur yfir geti komið upp sú staða að starfsemi viðkvæmra eininga á vinnustöðum Akureyrarbæjar raskist með mögulegu þjónusturofi. 

Óskað er eftir einstaklingum sem eru reiðubúnir að koma til starfa með skömmum fyrirvara í velferðarþjónustu, s.s. í þjónustu við aldraða, fatlað fólk, fólk með flóknar stuðningsþarfir og börn í vistunarúrræðum sem þurfa sértækan stuðning. Þetta getur bæði verið tiltekið starfshlutfall eða tímavinna. 

Íbúar á Akureyri sem hafa tök á eru eindregið hvattir til að skrá sig en frekari upplýsingar eru á www.akureyri.is. 


Athugasemdir

Nýjast