Akureyrarbær leiðir norðurslóðasamstarf

Frá undirritun samningsins í Hofi.
Frá undirritun samningsins í Hofi.

Bæjar- og borgarstjórar á Norðurslóðum undirrituðu samstarfsyfirlýsingu undir yfirskriftinni Arctic Mayors Forum í Hofi á dögunum. Þar með hafa samtök bæjar- og borgarstjóra á Norðurslóðum verið formlega stofnuð. Þessi vettvangur verður einkum notaður til að miðla reynslu og þekkingu, greina sameiginlegar áskoranir og tækifæri með hagsmuni nærsamfélaga, fólksins á Norðurslóðum, að leiðarljósi.

Í tilkynningu frá Akureyrarbær segir að markmiðið sé að tryggja aðkomu að stefnumótun og ákvarðanatöku um svæðið. Er þá bæði horft til ríkisstjórna og alþjóðlegra stofnana og samtaka, þar með talið að eignast áheyrnarfulltrúa í Norðurskautsráðinu. Að undirritun lokinni var haldinn fyrsti aðalfundur Arctic Mayors. Á fundinum var skipað í átta fulltrúa framkvæmdaráð og þriggja fulltrúa stjórn þar sem eiga sæti Ísland, Rússland og Noregur.

Bæjarstjórinn fyrsti formaðurinn

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, var á fundinum kjörin fyrsti formaður Arctic Mayors. Akureyrarbær leiðir þar af leiðandi samstarfið næstu tvö árin, samhliða formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu. Ákveðið hefur verið að sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna verði rauður þráður í öllu starfi Arctic Mayors. Á aðalfundinum var rætt um helstu áherslumál og verkefni Arctic Mayors næstu tvö árin og varframkvæmdaráðinu falið að móta þau frekar.

Stofnaðilar Arctic Mayors eru 13 bæjar- og borgarstjórar frá átta löndum; Rússlandi, Finnlandi, Íslandi, Grænlandi, Færeyjum, Bandaríkjunum, Kanada og Noregi. Líklegt þykir að fleiri bætist í hópinn á næstu misserum.


Athugasemdir

Nýjast