16. júlí, 2009 - 15:15
Fréttir
Akureyrarbær hefur iðað af mannlífi í sumar og ekkert lát virðist á. Auk fjölmargra landsmótsgesta um síðustu helgi voru
það ferðamenn af skemmtiferðaskipum, bæjarbúar og aðrir gestir sem nutu lista, íþrótta og veðurs. Helgina áður var það
sama upp á teningnum en þá fóru fram tvö af stærstu knattspyrnumótum landsins, N1-mót og Pollamót Þórs í
blíðskaparveðri, þar sem þúsundir gesta komu í bæinn.
Í dag hófust svo tvö önnur stór íþróttamót á Akureyri, með fjölmörgum keppendum, Íslandsmótið
í hestaíþróttum á Hlíðarholtsvelli í Lögmannshlíð og Íslandsmótið í golfi í flokki 35 ára og
eldri að Jaðri. Um 190 keppendur keppa á hestamótinu og um 200 keppendur í golfinu. Keppni á báðum mótunum stendur fram á laugardag.