Ákæra fyrrum formann Hjólreiðarfélags Akureyrar

Hjólreiðar njóta vaxandi vinsælda á Akureyri.
Hjólreiðar njóta vaxandi vinsælda á Akureyri.

Fyrrverandi formaður Hjólreiðafélags Akureyrar hefur verið ákærður fyrir hafa tekið ófrjálsri hendi tæplega þrjár milljónir króna. Maðurinn er sagður hafa millifært af reikningi hjólreiðafélagsins yfir á sinn reikning rúmlega tvær og hálfa milljón króna í 53 færslum á árinu 2016.

Frá þessu er greint í Vísir.is.

Einnig er hann ákærður fyrir eitt hundrað þúsund króna reikning frá Olís og fyrir viðskipti til eigin nota upp á 225 þúsund krónur með úttektarkorti hjá Olís á nafni hjólreiðafélagsins.

Nýjast