07. maí, 2007 - 15:17
Fréttir
Undanfarið hefur Leikfélag Hörgdæla sýnt söngva- og gamanleikinn Síldin kemur og síldin fer, eftir þær systur Iðunni og Kristínu Steinsdætur, í leikstjórn Sunnu Borg, á Melum í Hörgárdal. Má með sanni segja að uppfærslan hafi slegið gegn en uppselt hefur verið á 17 sýningar af 20 og hefur nýtt áhorfendamet verið slegið hjá leikfélaginu. Síðasta sýningin var áætluð sl. sunnudag en vegna mikilla vinsælda hefur verið nú verið ákveðið að efna til aukasýningar föstudaginn 11. maí kl. 20.30 og verður það allra allra síðasta sýning. Miðasala er símum 864 7686 og 862 6821 milli kl. 17.00 og 19.00.
Leikfélag Hörgdæla hefur í gegnum árin sýnt aðsóknarmikil verk, eins og Þrek og tár, Klerkar í klípu og Stundarfrið. Með 21 sýningu á Síldin kemur og síldin fer, jafnar leikfélagið sýningarmet sem náðist með leikritinu Þrek og tár en fyrir nokkru var áhorfendametið slegið og hafa um 1900 manns séð sýninguna.