Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ: Fjórir í bann

Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ kom saman í gær og úrskurðaði leikmenn í keppnisbann og voru fjórir einstaklingar í liðum á Norðurlandi úrskurðaðir í bann.

Sandor Zoltan Forizs, KA, fékk tveggja leikja bann vegna brottvísunar í leik Víkings R. og KA. Atli Sigurjónsson, Þór, fékk einnig tveggja leikja bann vegna brottvísunar í leik Þórs og Aftureldingar. Í sama leik fékk aðstoðarþjálfari Þórs, Páll Viðar Gíslason, eins leiks bann vegna brottvísunar og Halldór Áskell Stefánssson, leikmaður Magna, fékk eins leiks bann vegna fjögurra áminninga.

Nýjast