Aftur nýnemadagar á háskólasvæðinu

Nemendur við Háskólann á Akureyri.
Nemendur við Háskólann á Akureyri.

Dagana 23.–27. ágúst fara fram nýnemadagar við Háskólann á Akureyri. Í fyrra fóru þeir fram rafrænt og því tekið á móti nýnemum í húsnæði HA aftur í ár. Í tilkynningu frá HA segir að dagskráin fari fram í takt við sóttvarnaraðgerðir og ólíkt fyrri nýnemadögum verður hópnum skipt upp eftir deildum.

„Það eru 1.148 nýnemar skráðir í grunn- og framhaldsnám við HA á þessu haustmisseri,“ segir Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri. „Sum hver, sem koma beint úr framhaldsskólum, eru orðin þreytt á að sitja heima með takmarkað félagslíf. Við vitum eftir reynslu okkar af rafrænum nýnemadögum í fyrra að við getum vel haldið þá rafræna en þá vantar upp á tengslin sem stúdentar upplifa strax á fyrstu dögunum. Við erum því afar þakklát fyrir að geta boðið þeim að koma hingað í hús og tengjast strax samnemendum sínum.“

Á nýnemadögum fá nýnemar kynningu á námssamfélaginu, s.s. kennslukerfum og þjónustu háskólans. Markmið nýnemadaga er að nýnemar læri hvar þeir geta leitað sér aðstoðar. Þeir sem ekki komast á staðinn geta fylgst með dagskránni í streymi og greinagóðar upplýsingar er að finna á vef HA, www.unak.is.

Persónulegur háskóli

„HA er persónulegur háskóli og á nýnemadögum kemur bersýnilega í ljós að við sinnum hverjum og einum,“ segir Nökkvi Alexander Rounak Jónsson, formaður Stúdentafélags HA (SHA). „Stúdentafélagið grillar svo fyrir alla hópana í hádeginu og á föstudaginn er gert ráð fyrir sprelli þar sem nýnemum gefst enn betra tækifæri til að kynnast. Það ætti enginn að missa af þessari gleði.“ Að vanda verður Íslandsklukkunni hringt í tilefni af upphafi skólabyrjunar en það er fulltrúi nýnema sem slær 21 högg – eitt högg fyrir hvert ár frá árinu 2000. Almenningi er velkomið að fylgjast með hringingunni en passað skal upp á sóttvarnir.

Tvöföldun frá árinu 2002

Alls stunda nú 2545 stúdentar nám við Háskólann á Akureyri. Það er tvöföldun síðan árið 2002. Námsfyrirkomulag við HA gerir stúdentum kleift að stunda námið úr sinni heimabyggð en stúdentar mæta í námslotur til Akureyrar.

„Nýnemadagar eru fyrsta námslota hvers nýnema og við fögnum því að geta kynnt þeim háskólann og námið á staðnum á ný,“ segir Eyjólfur Guðmundsson rektor að lokum.

 

 


Athugasemdir

Nýjast