Aftur félags og íþróttastarf hjá börnunum

Börnin taka eflast gleði sína nú þegar æskulýðs- félags- og íþróttastarf hefst á ný, en það var fell…
Börnin taka eflast gleði sína nú þegar æskulýðs- félags- og íþróttastarf hefst á ný, en það var fellt niður í liðinni viku vegna mikillar útbreiðslu kórónuveirusmita. Mynd Margrét Þóra
Ekki er lengur talin þörf á að viðhalda þeim tilmælum sem gefin voru út í liðinni viku varðandi það að fella niður æskulýðs- íþrótta- og félagsstarf barna á grunnskólaaldri. "Það breytir því samt ekki að við hvetjum alla að huga vel að persónulegum smitvörnum og þá sérstaklega þar sem ungmenni koma saman og tryggja aðgengi að sótthreinsibúnaði á slíkum stöðum," segir í tilkynningu. 
 Undanfarnar tvær vikur hefur talsverður fjöldi kórónuveirusmita verið í gangi á Norðurlandi eystra og varð fljótt ljóst  að fjölmennasti hluti þeirra sem voru að smitast voru börn og unglingar á grunnskólaaldri þó svo að smitin næðu einnig inn í aðra aldurshópa. Áberandi var að börn sem ekki höfðu fengið bólusetningu voru þar fjölmennust.
Aðgerðastjórn Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra gaf út þau tilmæli fyrir viku síðan að æskulýðs-, íþrótta- og félagsstarfi barna og unglinga á grunnskólaaldri yrði ýtt til hliðar í viku  til að vinna bug á þessari stöðu og ná böndum yfir frekari dreifingu smita.
Fjöldi smita hélt áfram að vaxa og allt að 1300 manns voru í sóttkví á tímabili "en nú erum við farin að sjá þróun til betri vegar þó svo að fjöldi smitaðra einstaklinga í umdæminu sé með hæsta móti. Nú um helgina voru 10 smit staðfest en þar af voru aðeins 2 utan sóttkvíar," segir lögregla. Allir sem einhver einkenni hafa sem svipar til kóvid eru hvattir til að fara í sýnatöku og þá eru foreldrar hvattir til að ræða við börn sín um þessi mál og halda þeim heima hafi þau einhver einkenni. 
 
 

Athugasemdir

Nýjast