Aflamark í þorski verður 160 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um leyfilegan heildarafla fiskveiðiárið 2010/11, sem hefst 1. september nk. Aflamark í þorski verður 160 þúsund tonn, 50 þúsund tonn í ýsu og ufsa, 13 þúsund tonn í grálúðu og 12 þúsund tonn í steinbít. Aflamark í karfa er 40 þúsund tonn, 30 þúsund árið 2010 og 10 þúsund tonn á næsta ári.  Úthafsrækjuveiðar eru frjálsar á fiskveiðiárinu 2010/11, þar sem ekki hefur á neinu fiskveiðiári frá árinu 2000/01 verið aflað upp í útgefið aflamark.  

Á yfirstandandi fiskveiðiári er aflamark í þorski 150 þúsund tonn, 50 þúsund tonn í karfa, 63 þúsund tonn í ýsu og 50 þúsund tonn í ufsa og 12 þúsund tonn í grálúðu. Ákvörðun heildaraflamarks að þessu sinni verður að skoða í ljósi þess að í gangi er vinna við endurskoðun á fiskveiðistjórnuninni, segir í fréttatilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Starfandi er vinnuhópur sem í eiga sæti fjölmargir aðilar og ætlað er að hópurinn muni fljótlega skila af sér. Tillögur hans, ákvæði samstarfsyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og vinna stjórnvalda og Alþingis í framhaldinu munu hafa í för með sér breytingar.

Eins og kunnugt er greiðir útgerð fiskiskipa svokallað veiðigjald í ríkissjóð.  Gjaldið er lagt á úthlutaðar aflaheimildir eða landaðan afla einstakra tegunda. Gjaldið tekur mið af afkomu greinarinnar hverju sinni.  Áætlanir gera ráð fyrir að veiðigjald skili 2.700 - 2.900 m.kr. í ríkissjóð á fiskveiðiárinu 2010/11og hafi þá hækkað um helming, en á yfirstandandi fiskveiðiári er áætlað að gjaldið skili um 1.400 m.kr. í ríkissjóð.  

Nýjast