Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
Nú fyrir helgi birtist frétt í Fréttablaðinu sem tengdist skógrækt í Öskjuhlíðinni og þeirri staðreynd að þessi 60 ára gömlu tré eru farin að vaxa upp í hindrunarflöt einnar flugbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli þegar lent er til vesturs. Í fréttinni er m.a. haft eftir Gísla Marteini Baldurssyni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins: ,,Það er einkennilegt að borgin ákveði að stráfella þarna fjölda trjáa út af flugvelli sem hvort sem er að fara," einnig er haft eftir borgarfulltrúanum: ,, Í dag meta menn skóglendi mjög mikils og líta ekkert á það sem möguleika að stráfella skóga".
Í núverandi skipulagi í Reykjavík er gert ráð fyrir austur-vesturflugbrautinni í skipulagi til 2024 eða í a.m.k 12 ár í viðbót. Það eru liðin 70 ár síðan flugvöllurinn í Vatnsmýrinni var tekin í notkun þannig að völlurinn hafði verið í notkun í um 10 ár þegar skógrækt hófst í Öskjuhlíðinni. Þannig mætti ætla að þeir sem stóðu að ræktuninni og þeir sem gáfu leyfi fyrir henni hefðu vitað að liðnum einhverjum áratugum myndi skógvöxturinn hafa áhrif á aðflug og brottflug frá þeirri flugbraut sem hér á í hlut.
Í nýrri skoðanakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins sem var kynnt um liðna helgi kemur fram að 85% landsmanna er fylgjandi því að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni. Sérstaklega var áhugavert að sjá að 82% borgarbúa eru fylgjandi núverandi staðsetningu vallarins en 18% á móti. Hins vegar hefur lítið farið fyrir stuðningi núverandi borgarfulltrúa fyrir núverandi staðsetningi flugvallarins.
Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í síðasta mánuði lagði undirritaður fram eftirfarandi tillögu fyrir fundinn: ,,Landsfundur leggur áherslu á að Reykjavíkurflugvöllur gegnir lykilhlutverki sem miðstöð sjúkra- og innanlandsflugs. Flugvellinum skal því tryggð áframhaldandi aðstaða í Vatnsmýrinni og hið fyrsta skal hefjast handa við byggingu flugstöðvar. Grunnforsenda er að þar séu reknar tvær flugbrautir til frambúðar". Tillagan var samþykkt með afgerandi stuðningi fundarmanna. Stefna Sjálfstæðisflokksins í málefnum Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni er því skýr.
Á fundi í bæjarstjórn Akureyrar 17. nóvember 2010 eða fyrir rúmum 13 mánuðum lagði undirritaður fram tillögu þess efnis að bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar léti vinna skýrslu um efnahagslegar afleiðingar þess fyrir Akureyri og þá sem nýta sér Akureyrarflugvöll að Reykjavíkurflugvöllur verði lagður af í núverandi mynd. Við gerð skýrslunnar yrði einnig verði litið til öryggissjónarmiða. Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Mér vitanlega er vinna við gerð þessarar skýrslu ekki enn hafin. Í dag eru einungis rétt rúm fjögur ár til stefnu þar sem gert er ráð fyrir einni flugbraut í Vatnsmýrinni. Ég vil því nota tækifærið og hvetja forystufólk L-listans að ganga í málið og sjá til þess að skýrslan klárist hið fyrsta.
Rétt er að geta að undirritaður er mikill áhugamaður um skógrækt. Hins vegar verður forgangsröðunin að vera á hreinu og í mínum huga er hún önnur en borgarfulltrúans.
Höfundur et varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.