970 íbúðir á næstu árum á nýju íbúðasvæði vestan Borgarbrautar

Tölvumynd af vef Akureyrarbæjar
Tölvumynd af vef Akureyrarbæjar

Akureyrarbær kynnir í dag drög að deiliskipulagi fyrir nýtt íbúðasvæði vestan Borgarbrautar. Markmiðið er að leggja grunn að hverfi með fjölbreyttum íbúðagerðum og grænum svæðum sem verður aðlaðandi búsetukostur.

Áætlað er á svæðinu geti risið allt að 970 íbúðir á næstu árum. Markmiðið er að búa til vistvænt og grænt hverfi þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi. Blágrænar ofanvatnslausnir, göngu- og hjólastígar í sérrými, aðgengi að fjölbreyttum útivistarsvæðum og kvaðir um trjágróður eru dæmi um þetta.

Tillagan var mótuð með hliðsjón af hugmyndasöfnun í gegnun samráðsvettvanginn Okkar Akureyrarbæ sem blásið var til í vor. Fram komu margar áhugaverðar og gagnlegar hugmyndir frá íbúum og rötuðu nokkrar þeirra inn í drög að deiliskipulagi.

 

Grænt og vistvænt hverfi

Samkvæmt tillögu að deiliskipulagi er gert ráð fyrir að safngata liggi í gegnum íbúðasvæðið en húsagötur verði í flestum tilvikum botngötur til að hægja á umferð. Lagt er til þétt net göngu- og hjólastíga um hverfið og að meginleiðir verði ekki meðfram safngötu til að skapa næði frá bílaumferð. Mikil áhersla er lögð á gott aðgengi að grænum svæðum og er gert ráð fyrir torgsvæði, leiksvæðum, sleðabrekku og matjurtagarði.

Sjálfbær þróun er lykilatriði samkvæmt tillögunni og birtist meðal annars í blágrænum ofanvatnslausnum sem stefnt er að því að nota í hverfinu. Við enda botngata er gert ráð fyrir snjósöfnunarsvæðum sem tengjast ofanvatnslausnum svo ekki þurfi að aka snjó burt eftir mokstur. Þá er lagt til að kvöð verði sett á lóðir fjölbýlishúsa um trjágróður.

Gagnlegar hugmyndir frá íbúum

Lýsing á skipulagsverkefninu var kynnt í maí og þá var jafnframt óskað eftir hugmyndum frá íbúum í gegnum samráðsvettvanginn Okkar Akureyrarbæ.

Fjölmargar áhugaverðar og gagnlegar hugmyndir bárust sem voru hafðar til hliðsjónar við skipulagsvinnuna og rötuðu nokkrar þeirra með einum eða öðrum hætti inn í drög að deiliskipulagi. Sem dæmi má nefna hugmyndir um ofanvatnslausnir, aðgerðir til að draga úr umhverfisáhrifum, botngötur og snjósöfnunarsvæði, áherslu á gott stígakerfi, tillögu um matjurtagarða fyrir íbúa og að jarðefni sem falli til við framkvæmdir verði notað til að búa til útivistarsvæði. Helstu tillögur sem bárust og viðbrögð við þeim er að finna í kynningargögnum deiliskipulagsins.

Athygli er vakin á því að skipulagssvæðið var í upphafi kynnt undir vinnuheitinu Kollugerðishagi en ákveðið hefur verið að svæðið fái annað nafn þegar fram líða stundir.

Hér er hægt að skoða tillöguna nánar:

Myndræn kynningargögn 

Uppdráttur 


Athugasemdir

Nýjast