4000 skammtar af bóluefni í næstu viku

Bólusetningar ganga vel á Akureyri. Mynd/Margrét Þóra.
Bólusetningar ganga vel á Akureyri. Mynd/Margrét Þóra.

Þann 27. apríl eða næstkomandi þriðjudag fær HSN um 4000 skammta af bóluefni. Astra Zeneca bóluefnið verður alla jafnan nýtt til að hefja bólusetningu hjá íbúum sem fæddir eru 1961 og fyrr. Gert er ráð fyrir að fara langt með þann hóp, segir í tilkynningu frá HSN.

Pfizer bóluefnið verður nýtt í seinni bólusetningu þeirra sem fengu bóluefni 6.-9 apríl og fyrri bólusetningu hjá þeim sem eru yngri en 60 ára og hafa undirliggjandi sjúkdóma. Á Akureyri fer seinni bólusetning þeirra sem fengu fyrri bólusetninguna með Pfizer bóluefninu 8. apríl fram þriðjudaginn 27. apríl. Þeir sem hafa ekki farsíma og fá því ekki boð með sms eru beðnir um að mæta í seinni bólusetninguna á slökkvistöðina 27. apríl milli kl. 12-15. Þeir sem eru að fá fyrri bólusetninguna með Pfizer verða einnig bólusettir 27. apríl.

Á Akureyri fer bólusetning þeirra sem ekki hafa hafið bólusetningu og er fætt í árgöngum 1961 og fyrr fram fimmtudaginn 29. apríl. Fólk sem fætt er í þessum árgöngum og hefur ekki farsíma og fær því ekki boð með sms er beðið um að mæta í bólusetningu á slökkvistöðina 29. apríl milli kl. 09-12.

Á öðrum heilsugæslum á Norðurlandi mun fólk í þessum árgöngum og hópum fá boð í bólusetningu annaðhvort með sms skilaboðum eða með símtali þar sem tími og staðsetning kemur fram, segir í tilkynningu frá HSN.


Athugasemdir

Nýjast