30 brautskráðust frá HA

Háskólinn á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri.

Alls brautskráðust 30 nemendur frá Háskólanum á Akureyri þann 15. október sl. Brautskráning frá HA fer almennt fram í júní á ári hverju en þess utan stendur stúdentum til boða að brautskrást í febrúar eða október án hátíðar.

Á vormisseri kom háskólinn til móts við stúdenta með því að veita aukið svigrúm á skilum á lokaverkefnum og/eða að þreyta próf í aukaprófatíð í ágúst. Var þetta gert vegna aðstæðna í samfélaginu með það að markmiði að minnka streitu og álag stúdenta.


Athugasemdir

Nýjast