12 mánaða börn í fimm leikskólum Akureyrarbæjar

Leikskólinn Iðavöllur er einn af fimm leikskólum sem tekur við eins árs gömlum börnum í haust. Mynd/…
Leikskólinn Iðavöllur er einn af fimm leikskólum sem tekur við eins árs gömlum börnum í haust. Mynd/Akureyri.is

Í haust verða innrituð 12 mánaða gömul börn í fimm leikskóla Akureyrarbæjar. Er þetta í fyrsta sinn sem svo ung börn eru almennt innrituð í leikskóla bæjarins er fram kemur í frétt á vef Akureyrarbæjar.

Stærsta ástæða þessara breytinga á þjónustu við börn og foreldra er tilkoma Klappa, nýs leikskóla við Glerárskóla. Framkvæmdir hafa staðið í rúmt ár og er frágangur á lokametrunum. Skólastarf hefst um mánaðamótin. Klappir er sjö deilda leikskóli og í vetur verða innrituð börn fædd 2019 og 2020 á fimm deildum leikskólans. Alls verða rúmlega 120 börn í leikskólanum í vetur. 

Aðrir leikskólar sem taka við yngsta aldurshópi leikskólabarna, 12-14 mánaða, eru Árholt/Tröllaborgir, Iðavöllur, Hulduheimar Sel og Pálmholt/Lundarsel. Gert er ráð fyrir að allir leikskólar verði fullsetnir nú í septembermánuði og er því ekki reiknað með að hægt verði að innrita fleiri börn í haust eða vetur. 

Alls verða um 830 börn í leikskólum bæjarins í vetur. Þar af eru 250 börn að hefja sína leikskólagöngu í haust. Um 40 börn eru í yngsta aldurshópnum, 12-14 mánaða.

 


Athugasemdir

Nýjast