Kortleggur erfðamengi rjúpunnar
Kristinn P. Magnússon, prófessor í sameindaerfðafræði við Háskólann á Akureyri, borðar ekki rjúpur um jólin en þekkir þær þó mun betur en aðrir.
Kristinn P. Magnússon, prófessor í sameindaerfðafræði við Háskólann á Akureyri, borðar ekki rjúpur um jólin en þekkir þær þó mun betur en aðrir.
Starfsmenn Slökkviliðs Akureyrar heyrðu af því að aldrei hefðu fleiri óskað eftir mataraðstoð vegna komandi hátíðar. Þá var ákveðið að leggja hönd á plóg. Starfsmenn SA söfnuðu í sjóð og fóru og verslaðuðu matarpakka Starfsmenn SA komu saman og afhentu svo pakkana til Sigrúnar Steinarsdóttur sem sér um dreifingu.
Stöndum saman því það eiga allir skilið að eiga gleðileg jól.
þetta má sjá á Facebooksíðu slökkviliðsins ásamt nokkrum myndum
Vetrarsólstöðuganga Píeta samtakanna á Norðurlandi verður haldin miðvikudaginn 21. desember hér á Svalbarðseyri.
Píeta samtökin standa fyrir göngunni og ætla að hittast við hárgreiðslustofuna Hárið 1908 þar sem hægt verður að kaupa kaffi og kakó. Allur ágóði sölunnar mun renna til Píeta samtakanna.
15. desember síðastliðinn var haldinn aðalfundur Golfklúbbs Akureyrar fyrir rekstrarárið 2022 en 43 GA félagar mættu upp á Jaðar og fylgdust með fundinum. Á fundinum voru hefðbundin aðalfundarstörf en það var hann Jón Steindór Árnason sem var kosinn fundarstjóri og Jón Heiðar Sigurðsson var kosinn ritari. Bjarni Þórhallsson, formaður GA, hóf fundinn á því að fara með skýrslu formanns áður en Steindór Kristinn, framkvæmdarstjóri, fór yfir rekstrarárið ásamt því að fara yfir ársreikning klúbbsins fyrir árið 2022 og var hann samþykktur af fundargestum.
Samskip hefur um langt árabil verið traustur bakhjarl Andrésar andar leikanna og hafa þessir aðilar nú endurnýjað samstarf sitt til næstu þriggja ára.
Fyrir liggur að Akureyrarbær mun fara í endurbyggingu á húsnæði fyrir fatlað fólk í Hafnarstræti 16 þar sem þörfin er mjög mikil. Velferðarráð Akureyrarbæjar óskaði eftir umræddri staðsetningu, þar sem hún er talin henta mjög vel. Húsið hefur staðið autt í nokkur ár vegna þess að það uppfyllir ekki nútímakröfur um aðbúnað. Því verður nú breytt og endurbygging mun skila stærra og betra húsi sem henta notendum. Eina leiðin til þess gera slíkar breytingar er að stækka húsið til suðurs inn á grænt svæði, sem stendur við leikvöllinn í Innbænum. Hægt er að sjá ágætlega breytinguna með því að horfa á bleiku línurnar á myndinni hér að neðan.
-Stefnir í að um 300 manns þurfi aðstoð fyrir jólin
Vefurinn náði tali af Aðalsteini Árna Baldurssyni og innti hann eftir viðbrögðum við úrslitum í kosningum um nýjan kjarasamning við Starfsgreinasambandið. Félagar í Framsýn samþykktu samningin örugglega en u.þ.b 85% félagsmanna sem þátt tóku samþykktu hinn nýja samning
Aðalsteinn stóridómur er fallinn samningurinn er samþykktur með miklum meirihluta, þín viðbrögð?
Niðurstaðan er afar ánægjuleg, reyndar glæsileg. Við fylgdum eftir kröfugerð félagsmanna sem greinlega eru ánægðir með útkomuna þar sem um 86% félagsmanna þeirra aðildarfélaga innan Starfsgreinsambandsins sem stóðu að gerð kjarasamningsins samþykktu hann í rafrænni atkvæðagreiðslu.
Hvernig tilfinning er að sjá þessar viðtökur félagsmanna?
Að sjálfsögðu góðar enda eru félagsmenn að senda skýr skilaboð með þessari afstöðu varðandi samninginn. Það eru ekki allir sem átta sig á þeirri miklu vinnu sem er á bak við gerð kjarasamnings, þess vegna ekki síst skiptir verulega miklu máli að samningnum sé vel tekið af okkar félagsmönnum.
Fannst þér að áróður væri rekinn gegn þessum samningum fra stjórnendum Elfingar?
Já, áróður forsvarsmanna Eflingar gegn kjarasamningnum er þeim til mikillar skammar. Þau lögðu mikla vinnu í að tala samninginn niður og vöruðu við samþykkt hans meðal annars með ályktun. Höfum í huga að Eflingu bauðst að vera með okkur í kjarasamningsgerðinni sem félagið hafnaði. Það er, þau höfnuðu samstöðunni, svo það sé á hreinu. Hins vegar óska ég Eflingu velfarnaðar í kjaraviðræðum þeirra við Samtök atvinnulífsins á næstu dögum um leið og ég gleðst yfir því að félagsmenn Framsýnar fái launahækkun frá 1. nóvember. Það er í aðdraganda jóla þegar útgjöld heimilanna ná almennt hámarki á hverju ári.
,,Við hjá Einingu-Iðju erum ákaflega ánægð með að okkar félagsmenn skildu kveða upp afgerandi niðurstöðu í kosningunni um samninginn. Tæp 84% þeirra sem kusu samþykktu hann og það segir okkur að við vorum að gera rétt með því að skrifa undir þennan skammtímasamning“ segir Björn Snæbjörnsson um nýja kjarasamninga sem samþykkt voru fyrr í dag. Eins og fyrr greindi hér voru samningarnir samþykktir með miklum meirihluta, já sögðu 83,93% nei sögðu 10,10% þeir sem ekki tóku afstöðu voru 5,97% Kjörsókn var 26,1%.
Vefurinn setti sig i samband við valinkunna Norðlendinga og sendi þeim nokkrar spurningar tengdum jólum og aðdraganda þeirra það skiptir fólk máli á þessum tíma og hver væri eftirminnilegasta jólagjöfin amk. enn sem komið er.
Það er Sigrún Steinarsdóttir hjá Matargjöfum Akureryar og nágrennis sem ríður á vaðið en hún stendur svo sannarlega i ströngu þessa dagana
Eftirminnilegasta jólagjöfin er panda dúnúlpa sem ég fékk þegar ég var 9 ára. Hún var mér eins og gull.
Uppáhalds jólahefðin er að fara út að borða á þorláksmessu með fjölskyldunni og skreyta svo jólatréið.
Mikilvægast er að hátíðirnar séu afslappaðar. Þess vegna að borða í náttfötum á aðfangadag.
Missa sig ekki í stressi.
Gleðileg jól.
Í dag kl. 12:00 lauk atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. Atkvæðagreiðslan fór fram inn á Mínum síðum félagsins.
Þetta er á ,,matseðlinum´´ frá Veðurstofu Íslands þessa viku og ekki hægt að segja að það sé eitthvað óeðlilegt við það m.v. árstíma.
Trefill, húfa, góðir vettlingar og hlý úpla er það sem mælt er með og svo má alltaf fá sér gott kakó þegar inn er komið. Svo tekur daginn að lengja á fimmtudag og áður en varir verður komið sumar og.......sól
Bókin Ástin á Laxá, Hermóður í Árnesi og átökin miklu komin út
Um er að ræða viðamikið og metnaðarfullt verkefni sem eigandi hússins, Gb5 ehf stendur fyrir. Megintilgangur með þessu stóra verkefni er að endurnýja og færa húsið til nútímans, en hafa þó í heiðri sögu þess og útlit
Jón Hólmgeirsson kennari og handverksmaður frá Stafni í Reykjadal kom færandi hendi með jólatré sem hann smíðaði en það prýðir nú jólatrjáasölu Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarna
Framkvæmdir við byggingu á lúxushóteli á Þengilhöfða við Grenivík ganga samkvæmt áætlun. Verið er að reisa starfsmannahús á svæðinu og verður lokið við það verkefni innan tíðar. Sem og einnig að gera undirstöður fyrir skálann á svæðinu.
Fyrirtækið Hvalaskoðun Akureyri hefur fengið úthlutað lóð við Oddeyrarbót 2, austan við Menningarhúsið Hof en þar hefur fyrirtækið verið með starfsemi. Nú stendur til að byggja þjónustuaðstöðu fyrir hvalaskoðun og á að nýtast bæði heimamönnum sem og ferðamönnum.
Dansað verður í kringum jólatré við grillhúsið á Birkivelli nú kl. 14 í dag. Samkoman er samstarf jólasveina, Skógræktarfélags Eyjafjarðar og Félags eldri borgara á Akureyri.
Langflestir eru mjög eða frekar sammála því að Reykjavíkurflugvöllur sé nauðsynlegur til að halda tengslum við höfuðborgina. Þetta kom fram í netkönnun sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri framkvæmdi fyrir Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra.
„Ég er ótrúlega stolt af sjálfri mér að hafa ákveðið að gera þetta. Ég var alltaf að bíða eftir því að líkaminn myndi bara segja stopp en alltaf gat ég haldið áfram, ég vissi alveg að hausinn gæti þraukað lengi,“ segir Hafdís Sigurðardóttir hjólreiðakona, bæði Akureyrar og Íslands en hún vann það afrek um s.l. helgi að hjóla 1012 kílómetra og var samfleytt að í 46 klukkutíma. Hún byrjaði á föstudegi kl. 15 og var að fram yfir hádegi á sunnudag.
Samhjálpin gríðarlega mikilvæg, segir sóknarprestur
Tilkynning: Fyrsta fjárhagsáætlun nýs kjörtímabils liggur nú fyrir. Megináhersla meirihluta bæjarstjórnar Akureyrarbæjar er að hlúa að börnum og barnafjölskyldum, eldri borgurum og tekjulægri hópum.
Fyrr í vikunni undirritaði Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni (FVSA) / Landssamband íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins (SA) og Félag atvinnurekenda (FA). Vikublaðið náði tali af Eið Stefánssyni, formanni FVSA og samninganefndar LÍV.
Árið 2016 veitti norræni NORDplus sjóðurinn þremur raddfræðingum (frá Íslandi, Finnlandi og Svíþjóð) tvískiptan styrk. Annars vegar var hann ætlaður til að gera rannsókn á áliti leikskólabarna á hávaða í leikskólum og til að kanna þekkingu/álit þeirra á rödd, raddheilsu og munnlegum samskiptum. Hins vegar var tilgangurinn til að semja kennsluefni til að fræða börn og leikskólakennara um rödd, raddheilsu og raddmenningu.
Eins og fólki er eflaust í fersku minni samþykkti Bæjarstjórn Akureyrar á fundi sínum í haust að slíta vinabæjarsambandi Akureyrar við Murmansk jafnframt þvi sem bærinn sagði sig úr samtökunum Northern Forum. Þessi ákvörðum var tekin vegna innrásar Rússlands í Úkraínu.
Skipulagsráð Akureyrar tók fyrir á fundi sínum í þessari viku erindi frá Ágústi Hafsteinssyni fyrir hönd Klettabjargar efh þar sem sótt er um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð nr, 1 við Viðjulund.
Fæðuöryggi var ekki efst á baugi fyrri hluta síðustu aldar þegar hætta var á að landið einangraðist vegna stríðsátaka. Landsmenn höfðu mun meiri áhyggjur af kolaskorti, að þeir gætu ekki hitað upp híbýli sín og vatn af þeim sökum. Hvorugt var hægt án kola sem voru í miklum birgðum niðri á Oddeyri og í miðbænum; því stærri sem kolafjöllin voru veittu þau bæjarbúum meira öryggi. Frá þeim var ekið með kolin í stórum strigapokum í öll hús bæjarins. Til þess voru brúkaðir sérhannaðir vörubílar með pöllum sem voru lægra settir en almennt gerðist á vörubílum. Því áttu kolakarlarnir auðveldara með að ná pokunum af pöllunum beint á bakið og gengu síðan með þá í húsin. Þeir voru ávallt með þykka skinnsvuntur á bakinu til hlífðar og þær spenntar með breiðum skinnólum fram á brjóst. Þegar kolakarlarnir roguðust dökkir á brún með þessa stóru og þungu poka af kolabílunum þótti okkur strákunum að þarna færu ofurmenni og tæpast af þessum heimi; sannkallaðir púlsmenn.