Undirbúa sölu mannvirkja í Skjaldarvík
,,Það er enn óljóst hvaða stefna verður tekin, öll sú umræða er eftir,“ segir Andri Teitsson formaður umhverfis- og mannvirkjanefndar Akureyrarbæjar.
,,Það er enn óljóst hvaða stefna verður tekin, öll sú umræða er eftir,“ segir Andri Teitsson formaður umhverfis- og mannvirkjanefndar Akureyrarbæjar.
Húsnæðisáætlun Akureyrarbæjar var samþykkt á síðasta bæjarstjórnarfundi. Ánægjulegt er að bæjarstjórn samþykkti samhljóða þær þrjár tillögur sem ég lagði fram í bæjarstjórn við gerð áætlunarinnar og í tengslum við rammasamning um aukið íbúðaframboð. Þær tillögur voru svo hljóðandi:
Í kjölfarið tóku drög að húsnæðisáætlun heilmiklum breytingum og þær ánægjulegustu voru að nú er gert ráð fyrir því í húsnæðisáætlun Akureyrarbæjar að 5% af nýju húsnæði verði félagslegar íbúðir á vegum sveitarfélagsins og að hagkvæmt húsnæði á viðráðanlegu verði, verði 30% af nýju húsnæði.
„Við völdum þetta verkefni af því það er svo skemmtilegt, fullt af fjöri, mikil og góð tónlist út sýninguna þannig að engum ætti að leiðast, „ segir Jóhanna Ingólfsdóttir formaður Freyvangsleikhússins en frumsýning á leikverkinu Fólkið í blokkinni verður í Freyvangi í kvöld, föstudagskvöld 24. febrúar kl. 20.
Jóhanna segir að leikverkið um Fólkið í blokkinni sé alls ekki eins og þættirnir sem margir þekkja og voru sýndir á RÚV og það er heldur ekki eins og samnefnd bók. „Þetta er allt annað,“ segir hún en leikgerðin snýst um fólk sem býr í sömu blokk og ákveður að setja upp söngleik. „Persónur eru að hluta til hinar sömu og í bókinni og húmorinn er sá sami.“
Núna laust fyrir kl 20 kom eftirfarandi færsla á Facebooksíðu Iðnaðarsafnsins en framtíð þess hefur verið í umræðu s.l vikur.
,,Saga Iðnaðarsafnsins á Akureyri í núverandi mynd er á enda.
Í dag varð það endalega ljóst að rekstur Iðnaðarsafnsins á Akureyri eins og hann hefur verið á undanförnum tæpum 25 árum, er komin að endamörkum.
Vilji og ákvörðun bæjarstjórnar Akureyrar er að safnið sameinist Minjasafninu á Akureyri og ennfremur verði hætt að safna áfram munum úr sögu Akureyrar, umfram einhver óskilgreynd ár á síðustu öld.
Einkum verði horft til áranna þegar iðnaður var í mestum blóma hér og þá einhverra sérstakra fyrirtækja en ekki verði haldið áfram að varðveita og safna í heild sinni iðnaðarsögu Akureyrar á nýrri öld.
Nokkuð ljóst er að Iðnaðarsafnið verður ekki opið á ársgrundvelli eins og verið hefur og muni þá væntanlega verða horft einkum til sumaropnunar og eða einstakra sýninga.
Á þessu stigi er einnig alveg óljóst hvort og þá með hvaða hætti safnið verði opið eftir 1. mars n.k.
Um þessa ákvörðun bæjaryfirvalda ætlum við starfsmenn og hollvinir safnsins ekki að tjá okkur að sinni, en munum síðar gefa út sameiginlega yfirlýsingu.”
Daníel Chandrachur Annisius skrifar
Nettó opnaði í dag nýja og endurbætta 2000 fermetra verslun á nýjum stað á Glerártorgi, í plássi sem Rúmfatalagerinn var í áður.
Sigrún Steinarsdóttir sem heldur úti síðunni Matargjöfum á Akureyri og nágrenni á Facebook dregur upp í færslu á Fb. dökka mynd af stöðu mála hjá mörgum um þessar mundir.
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps ákvað á liðnu hausti að hefja nú í ár Led-væðingu ljósastaura á Grenivík. Með því yrði lýsing bætt til muna en um leið náð fram orkusparnaði til framtíðar.
Skipt hefur verðið um hausa á ljósastaurum í Túngötu. Þar sem mjög langt er á milli staura í götunni, var nokkur áskorun að finna hausa sem ná að lýsa upp götuna án þess að lýsa beint á lóðir og glugga húsa. Reykjafell annaðist val hausa og var notað hermilíkan í tölvu til að skoða mismunandi lausnir en starfsmenn sveitarfélagsins sáu um undirbúning og vinnu við skiptin.
Öskudagurinn fór vel fram í ágætis veðri á Akureyri í gær. Öskudagslið í glæsilegum búningum fóru milli fyrirtækja og fluttu vel æfð lög fyrir starfsfólk og fengu verðlaun fyrir.
Lúgunestin á Akureyri, Leirunesti, Ak-inn og Veganesti tóku sig saman og buðu uppá gjafabréf fyrir ostborgurum eða frönskum sem hægt væri að nýta milli sjoppa og auglýstu vel dagana fyrir. Þessi hugmynd virðist fara vel í bæjarbúa því úr varð að 800 gjafabréf fyrir hamborgurum eða frönskum fóru út í skiptum fyrir söng.
„Okkur langaði að gera vel við börnin eftir frekar flókna öskudaga undanfarin ár útaf covid og varð þessi leið fyrir valinu og má segja að hún hafi vægast sagt slegið í gegn hjá öskudagsliðum bæjarins“ sagði Markús Gústafsson í Ak-Inn er hann var inntur eftir því hvers vegna þeir ákváðu að gefa hamborgara.
Kristinn Hugi heiti ég og er á þriðja ári í matreiðslu við Verkmenntaskólann á Akureyri. Ég hef verið að fikta við mat alveg frá því að ég var lítill pjakkur, það var alltaf eitthvað sem heillaði mig við matreiðslu. Ákvörðunin að fara í þetta nám var því ekki erfið og ég mæli eindregið með því fyrir alla þá sem hafa áhuga á mat og matreiðslu,“ segir Kristinn Hugi Arnarsson sem er á þriðja ári á matvælabraut Verkmenntaskólans á Akureyri.
Hann segir að þessi uppskrift hafi orðið fyrir valinu því hún sé alltaf til í pokahorninu og gott að grípa til þegar sköpunargleðin er ekki alveg til staðar. „Þessi réttur er mjög góð blanda af léttum og ljúfum brögðum ásamt smá sterkum tónum. Það er einnig hægt að bera hann fram sem pottrétt vilji fólk það og þá með naan brauði og einn kostur er að hafa réttinn bara alveg einan og sér.“
Björn Snæbjörnsson mun láta af formennsku á næsta aðalfundi félagsins. Hann hefur gegnt embætti formanns Einingar-Iðju frá árinu 1999 og Verkalýðsfélagsins Einingar þar á undan frá árinu 1992, eða samtals í 31 ár. Hann sat sem meðstjórnandi í stjórn Einingar árin 1982 til 1986 og sem varaformaður frá árinu 1986. Árin í stjórn félagsins verða því orðin 41 þegar hann hættir formennsku og óhætt að segja að það verði stór tímamót á næsta aðalfundi þegar nýr formaður mun taka við.
Í dag fimmtudaginn 23. febrúar nk. kynnir dr. Hulda Sædís Bryngeirsdóttir, hjúkrunarfræðingur og aðjúnkt við Háskólann á Akureyri, niðurstöður doktorsrannsóknar sinnar sem hún varði við HA í lok síðasta árs.
Kynningin fer fram í Brauðgerðarhúsinu í verslunarmiðstöðinni við Sunnuhlíð og hefst kl. 16:00.
Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær var m.a. rætt um málefni Grímseyjar. Halla Björk Reynisdóttir fór meðal annars yfir stöðu mála og næstu skref við lok byggðaþróunarverkefnisins Glæðum Grímsey, skipulagsmál, orkumál, sorpmál og atvinnumál.
Vegna vinnu við dreifikerfi Norðurorku verður LOKAÐ fyrir RAFMAGN í hluta Lundahverfis á morgun fimmtudaginn 23. febrúar. Áætlaður tími er frá kl. 8.15-17.00 eða meðan vinna stendur yfir. Á heimasíðu Norðurorku, www.no.is, er að finna ýmis góð ráð við rafmagansrofi.
Einstök börn er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni. Félagið var stofnað 1997 af foreldrum nokkurra barna en nú hefur félagið stækkað ört og eru hátt í 600 fjölskyldur í félaginu á landinu öllu sem eru með afar fátíðar greiningar.
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis heldur Kótilettukvöld þann 23. mars í tilefni Mottumars
Fyrri samningur rann út um síðastliðin áramót og núverandi samningur gildir út árið 2025
Meðal efnis framhald á umfjöllun um Krákustígsmálið, Freyvangsleikhúsið frumsýnir Fókið í blokkinn og lofar fjöri. Nýr golfskáli er í bygginu á Húsvík og sá gamli brann. Krossgátan er á sínum stað. Mikill áhugi fyrir lyftingum. Tvær nýjar sýningar opnaðar í Listasafninu. Nettó opnar á nýjum stað á Glerártorgi. Grenvíkingar bæta götulýsingu. Hægeldaður lambaskanki gæti smellpassað í helgarmatinn. Verkefninu Glæðum Grímsey er lokið og nýr sveitarstjóri tekur til starfa í Þingeyjarsveit. Um þetta og meira til er fjallað í blaði morgundagsins.
Minnum á áskriftarsímann 8606751
Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær með 8 atkvæðum tillögu skipulagsráðs að breytingu á gjaldskrá gatnagerðargjalda og vísar málinu til seinni umræðu í bæjarstjórn.
Skipulagsráð lagði til við bæjarráð að breyting yrði gerð á gjaldskrá gatnagerðargjalda þannig að gjald fyrir fjölbýlishús verði það sama og fyrir önnur íbúðarhús eða 15% í stað 12,5%. Þá er einnig lagt til að á móti lækki gjald fyrir bílakjallara fjölbýlishúsa úr 5,0% í 3,75%. Forsendur þessara breytinga eru þær að uppbygging og rekstur gatnakerfis færist nær því að standa undir sér. Á sama tíma er gert ráð fyrir lækkun á gjaldi fyrir bílakjallara til að hvetja til byggingar þeirra og betri landnýtingar.
Í dag er „þjóðhátíðardagur“ okkar Akureyringa – Öskudagurinn. Börn á Akureyri hafa haldið þennan dag hátíðlegan hálfa aðra öld, upphaflega að danskri fyrirmynd, enda Akureyri upphaflega danskur bær þar sem töluð var danska á sunnudögum. Jón Hjaltason sagnfræðingur skrifar um öskudaginn og bolludaginn víða í Sögu Akureyrar og segir frá því, að elsta áreiðanlega dæmið um að slá köttinn úr tunnunni, sem að vísu oftast var dauður hrafn, sé frá árinu 1867, en framan af hafi sá siður verið bundinn mánudegi í byrjun föstu. Ekki má heldur gleyma hópum barna, sem klæddu sig í skringilegan fatnað og fórum um bæinn og sungu og fengu í staðinn sælgæti og jafnvel peninga. Lengi framan af var fátítt að halda öskudaginn hátíðlegan annars staðar á landinu, en nú hefur siðurinn verið tekinn upp víða um land. Með öskudegi hefst langafasta eða sjö vikna fasta í kaþólskum sið. Öskudagur er ávallt miðvikudag sjö vikum fyrir páska og heitir á dönsku og norsku askeonsdag, á ensku Ash Wednesday og á þýsku Aschermittwoch.
Nemandi á unglingastigi í Lundarskóla á Akureyri mætti með heimatilbúið skotvopn í skólann fyrir helgi og sýndi af sér ógnandi hegðun gagnvart kennara.
Samstarfsverkefni Náttúrustofu Vestfjarða (www.nave.is), Náttúrustofu Austurlands (www.na.is) og rannsókna og ráðgjafafyrirtækisins RORUM (www.rorum.is) „Birtingarmyndir Loftlagsbreytinga“ hlaut styrk úr Loftlagssjóði. Verkefnið hefur það að markmiði að gera vefsíðu sem sýnir samfélög hryggleysingja á hafsbotni á ákveðnum stað á mismunandi tíma.
Framtíðin byrjar í Háskólanum á Akureyri og það var svo sannarlega líf og fjör í Hátíðarsal háskólans þegar 45 nemendur í 4. bekk í Brekkuskóla mættu í lotu hjá stúdentum í námskeiðinu Hugræn taugavísindi sem kennt er við Sálfræðideild.
Þór/KA hefur samið við miðvörðinn Dominique Randle um að leika með liðinu á komandi keppnistímabili.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur samið við Ragnheiði Jónu Ingimarsdóttur um að taka að sér starf sveitarstjóra Þingeyjarsveitar út kjörtímabilið.
Í dag er Sprengidagur sem er seinasti dagur fyrir lönguföstu sem hefst á morgun Öskudag. Á heimasíðu sem heitir www.islensktalmanak.is eru þessar upplýsingar að finna um þennan merka dag.
,,Sprengidagur er þriðjudagurinn á milli Bolludags á mánudegi og Öskudags á miðvikudegi. Ásamt sunnudeginum og Bolludeginum kallast þeir þrír Föstuinngangur fyrir Lönguföstu sem hefst á Öskudag í 7. viku fyrir Páska.
Heimasíða Þórs greinir frá þvi að finnski leikmaðurinn Akseli Kalermo hafi skrifa undir samnig við knattspyrnudeild félagsins og leiki með liðinu á komandi keppnistímabili. Kalermo sem er 26 ára gamall leikur i stöðu miðvarðar og kemur til Þórsara frá Litháenska félaginu FK Riteriai sem er frá Vilinius.