Tækifæri í sameinuðu sveitarfélagi

Helgi Héðinsson og Jóna Björg Hlöðversdóttir skrifa

 

Lesa meira

Eyþór Björnsson ráðinn forstjóri Norðurorku

Eyþór mun taka við starfinu af Helga Jóhannessyni

Lesa meira

Færri skurðaðgerðir vegna álags af völdum Cóvid

Skurðaðgerðum hefur fækkað á Sjúkrahúsinu á Akureyri á tímabilinu janúar til mars á þessu ári og er helsta skýringin þar álag vegna Covid-19 en draga þurfti úr þjónustu vegna álags því tengt og manneklu. Þetta kemur fram á vef SAk þar sem fjallað er um tölur úr starfseminni.

Lesa meira

Þrír formenn verkalýðsfélaga við Eyjafjörð harma aðgerðir stjórnar Eflingar

Formenn Sjómannafélags Eyjafjarðar, Félags málmiðnaðarmanna og Félags verslunar - og skrifstofufólks sendu frá sér yfirlysingu í dag þar sem þeir segjast harma stöðuna sem upp er komin hjá Verkalýðsfélaginu Elfingu 

Yfirlýsing þremenningana er svohljóðandi:

Undirritaðir harma þær aðferðir og stjórnarhætti sem stjórn Eflingar beitir undir merkjum skipulagsbreytinga innan félagsins. Sem atvinnurekandi hefur Efling brugðist starfsfólki sínu, bæði í orðum og gjörðum, nú síðast með hópuppsögn sem á sér ekki fordæmi innan verkalýðshreyfingarinnar. Því lýsum við yfir þungum áhyggjum yfir stöðu og líðan starfsmanna Eflingar. Ekki er gerð athugasemd við að fyrirtæki eða stéttarfélög ráðist í skipulagsbreytingar, en þær breytingar verða að vera framkvæmdar á mannlegan hátt með velferð og líðan starfsmanna í huga.

Verkalýðshreyfingin verður að fara fram með góðu fordæmi á vinnumarkaði og tryggja að aðbúnaður starfsfólks innan hennar sé með þeim hætti sem krafa er gerð um á almennum vinnumarkaði. Að öðrum kosti er hætta á að sú sérþekking sem býr í verðmætum mannauð innan hreyfingarinnar glatist.

Eiður Stefánsson, formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni,
Jóhann Rúnar Sigurðsson , formaður Félags málmiðnaðarmanna á Akureyri og
Trausti Jörundarson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar.

 

Lesa meira

Siggi Gunnars ráðinn tónlistarstjóri Rásar 2

Sigurður  Þorri Gunnarsson sem er lesendum Vikublaðsins  vel kunnur m.a sem  skrifari  bakþanka í blaðið var í dag kynntur sem nýr tónlistarstjóri  Rásar2, Siggi starfaði áður sem tónlistar og dagskrárstjóri K100.

 

Lesa meira

Framkvæmdir hafnar á KA-svæðinu

Fyrsta skrefið í framkvæmdum er jarðvegsvinna þangað sem færa á núverandi gervigras. 

Lesa meira

Félagsmenn vilja aukinn kaupmátt og hann sé tryggður

Eining Iðja tilbúin í lok apríl með kröfugerð vegna komandi kjarasamninga

Lesa meira

Útivist og vetraríþróttir burðarás vetrarferðamennsku á Akureyri

Niðurstöður rannsóknar á vetraráfangastaðnum Akureyri út frá sjónarhóli íbúa

Lesa meira

Framboðslisti Kattaframboðsins samþykktur

Á síðasta ári boðaði Snorri Ásmundsson að nýtt kattaframboð myndi bjóða fram í komandi sveitarstjórnarkosningum á Akureyri

Lesa meira

Þóra Pétursdóttur nýr formaður Þórs

Miklar breytingar á aðalstjórn Þórs

Lesa meira

Sköpun, tilraunir og flæði í Listasafninu

Barnamenningarhátíð á Akureyri er í fullum gangi og um síðustu helgi fór fram önnur listvinnustofa verkefnisins Allt til enda

Lesa meira

Akureyrarflugvöllur verður nú bókanlegur með beinu flugi utan úr heimi í fyrsta sinn

Flug Niceair til þriggja áfangastaða í Evrópu eru nú bókanleg í gegnum vefsíðu Dohop

Lesa meira

Tvö framboð í Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit

Yfirkjörstjórn vegna sveitarstjórnarkosninga í Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit veitti viðtöku tveimur framboðslistum sem lagðir voru fram á fundi með umboðsmönnum 

Lesa meira

Kjarnavegur lokaður vegna endurbóta

Miklar framkvæmdir standa nú yfir við lagfæringar á Kjarnavegi við Kjarnaskóg  og er veginum  lokað milli gróðrarstöðva  og bílaplansins við Kjarnakot á meðan á þeim stendur.   Ekki er  hjáleið við vinnusvæðið  og er gestum sem njóta vilja útivistarsvæðisins í Kjarna  bent á að fara  Eyjafjarðarbraut vestri (flugvallarmegin). Þeir sem eiga erindi í gróðrarstöðina fara Naustahverfisleiðina.

Reikna má með að þessar framkvæmdir standi yfir  fram yfir páska.  Með þeim er verið að betrumbæta veginnn á svæðinu en eins  fólk sem um hann fer  hefur tekið eftir hefur ástandið ekki verð merkilegt s.l ár og  etv með versta móti á ár. 

Framkvæmdum lýkur  svo með þvi að það verður malbikuð en þó líklega ekki fyrr en í júni.  Einnig verður þetta tækifæri notað til þess að leggja 250 metra langan göngustíg meðfram veginum  til þess að bæta öryggi hjólandi og  gangandi vegfarenda sem um svæðið fara.

Lesa meira

Þrjú sæmd gullmerki Einingar-Iðju

Þetta voru þau Guðrún Þorbjarnardóttir, Hallfríður Hallsdóttir og Baldvin Hreinn Eiðsson

Lesa meira

Norðurorka stefnt að ráðingu forstjóra fyrir páska

Starf forstjóra Norðurorku var auglyst laust til umsóknar í s.l. mánuði og rann frestur til þess að sækja um starfið út þann 30 mars s.l.   Samkvæmt upplýsingum frá Sigríði  Ólafsdóttur hjá Mögnum sem fer með málið er ráðningarferlið i fullum gangi og ætti því að verða lokið fyrir páska.

Alls bárust 25 umsóknir um stöðuna, Vikublaðið óskaði eftir nafnalista með umsækjendum fyrir helgi og samkvæmt upplýsingalögum hefur  Mögnum sjö daga til að upplýsa umsækjendur um beiðnina og vinna listann til birtingar.

Lesa meira

Níu framboðslistar í framboði á Akureyri

Alls níu framboðlistar bárust yfirkjörstjórn á Akureyri og voru þeir úrskurðaðir gildir fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram 14. maí nk.

Lesa meira

Framsókn í verðmætasköpun

Kröftugt atvinnulíf er forsenda þess að við eflum okkar bæ, löðum að nýja íbúa og tryggjum að unga fólkið okkar geti snúið heim aftur eftir nám. Við í Framsókn leggjum áherslu á gott samstarf við atvinnulífið og að við tölum okkur upp sem öflugt atvinnusvæði. 

Lesa meira

KA er deildarmeistari í blaki kvenna

Framundan er 4 liða úrslitakeppni og mæta deildarmeistararnir liði Þróttar-Fjarðabyggðar í fyrstu umferð 

 

 

 

 
Lesa meira

Hvetur alla unglinga til að vera skapandi

Nú hefur Ragga Rix fylgt sigrinum í Rímnaflæði eftir með nýju  lagi, ,,Bla bla bla” sem hægt er að hlusta á á Youtube.

Lesa meira

Kvennalið Skautafélags Akureyrar Íslandsmeistarar í íshokky

Kvennalið SA tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratiltinn i íshokky þegar liðið lagði Fjölniskonur 1-0 i framlengdum leik í Skautahöllinni á Akureyri.

Það var Ragnhildur Kjartansdóttir sem skoraði markið mikilvæga á 62 mín. leiksins.  Alls þurfti að sigra i 3 leikjum í úrslitum til þess að verða meistarar og SA konur gerðu sér  lítið fyrir og unnu 3 leiki án þess að andstæðingar þeirra næðum einu sigri.

Þetta mun vera tuttugasti Íslandsmeistaratitill SA kvenna, glæsilegur árangur það.

Lesa meira

Pólsk matarveisla til stuðning úkraínskum flóttamönnum

Síðustu vikur hafa íbúar í Svalbarðsstrandarhreppi keppst við að prjóna á börn og safna fötum sem send verða til Póllands og þaðan áfram til flóttamanna sem koma frá Úkraínu.

Lesa meira

Öflugur mannauður er lykilatriði í verslunarrekstri

„Það eru spennandi og skemmtilegir tímar fram undan í versluninni, mikil og ör þróun sem gaman er að fylgjast með,“ segir Eiður Stefánsson formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og nágrenni, FVSA. Verslun hefur almennt gengið vel í höfuðstað Norðurlands undanfarið og útlit fyrir vöxt í atvinnugreininni miðað við áform um opnun nýrra verslana síðar á árinu.

Eiður segir aukna sjálfvirkni einkenna verslun um þessar mundir. „Þetta er þróun sem hófst fyrir meira en áratug og með tilkomu t.d. sjálfsafgreiðslukassa hefur starfsfólki í verslunum fækkað og þjónusta minnkað. Næsta skref verður að vara er skönnuð jafnóðum og viðskiptavinur setur hana í körfuna og þegar verslunarferð er lokið er gert rafrænt upp um leið og gengið er út úr búðinni. Tækninni fylgir oft kostnaður sem þarf þá að skera niður annars staðar. Það þarf því að gæta að því að álag aukist ekki á þeim sem starfa á gólfinu“.

Eiður segir mikilvægt að félagsmenn séu duglegir að nýta sér þá þjónustu sem stéttarfélögin bjóði upp á. „Sjálfvirkni kallar á starfsfólk með tækniþekkingu því vitaskuld þarf að hanna, þróa og viðhalda t.d. sjálfsafgreiðslukössunum. FVSA hefur frá upphafi lagt áherslu á að styðja sína félagsmenn til náms og endurmenntunar og hefur það reynst mörgum vel í starfi. Því hvetjum við alla til að kynna sér starfsmenntastyrki félagsins.“

Lesa meira

Framboðslisti L-listans til sveitastjórnarkosninga á Akureyri árið 2022

Framboðslisti L-listans á Akureyri hefur verið samþykktur en það er Gunnar Líndal Sigurðsson sem leiðir listann.

Lesa meira

Brýn þörf á fleiri dagforeldrum á Akureyri

Brúa þarf bil milli loka fæðingarorlofs þar til leikskólapláss er í boði

Lesa meira

Bandarískur ferðamaður lést í snjóflóðinu í Svarfaðardal

Viðbragðsteymi Rauða krossins var kallað út og fóru nokkrir félagar þess til Dalvíkur til að líta til með þeim viðbragðsaðilum sem fyrstir komu á vettvang

Lesa meira

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Verðandi

Hægt er að sækja um fyrir listaviðburðum af ólíku tagi. Til að mynda dans, tónleikum, gjörningum, ljóðaslammi, leiklist og fleira

Lesa meira