Velferðarráð veitir styrki Grófin,Frú Ragnheiður og Jólaaðstoðin fá styrki
Velferðarráð Akureyrarbæjar hefur samþykkt að veita nokkra styrki til velferðarmála. Aðrir sem sóttu um fengu ekki að þessu sinni.
Velferðarráð Akureyrarbæjar hefur samþykkt að veita nokkra styrki til velferðarmála. Aðrir sem sóttu um fengu ekki að þessu sinni.
Egill P. Egilsson skrifar um æskuvonbrigði sín með ákveðinn stjórnamálaflokk
Ný aðstaða þekkingarklasans á Hafnarstétt 1 og 3 var opnuð formlega undir heitinu Stéttin
Úrslit í ritlistakeppni Ungskálda 2022 voru kunngjörð á Amtsbókasafninu í vikunni
Ákveðið hefur verið að ganga til viðræðana við forsvarsmenn Norðurtorgs um hugsanlegt útibú fyrir vínbúð á Akureyri þar. Samkvæmt skriflegu svari frá Sigrúnu Ósk Sigurðardóttur aðstoðarframkvæmdastjóra Vínbúðarinnar skiluðu tveir aðilar inn tilboðum í plass fyrir vínbúð á Akureyri þ.e Glerártorg og Norðurtorg.
Sigrún Steinarsdóttir sem er ein þeirra sem sem standur að Matargjöfum á Akureyri og nángrenni skrifar á Facedbooksíðu þeirra í morgun um stöðuna hjá þeim.
„Við finnum fyrir aukningu nú í ár. Á fyrstu tíu mánuðum ársins voru skráðar fleiri komur til okkar en var fyrir sama tíma í fyrra. Árið er auðvitað ekki búið en okkar tilfinning er sú að við munum sjá hærri tölu við árslok en var fyrir árið 2021,“ segir Sigríður Ásta Hauksdóttir verkefnisstjóri hjá Bjarmahlíð miðstöð þolenda ofbeldis á Norðurlandi.
Afmælis- og aðventuhátíð Hjartalags fer fram á morgun laugardag, Hulda Ólafsdóttir það stendur mikið til? ,,Já það má segja það, Hjartalag er 9 ára á þessu ári og í fyrsta sinn eftir Covid sem ég opna vinnustofuna mína upp á gátt fyrir gestum svo það er mikil tilhlökkun. Ég hef svo boðið tveimur góðum vinkonum mínum að vera með mér þennan dag, Kristínu S. Bjarnadóttur í Blúndum og blómum og Ölmu Lilju Ævarsdóttur blómahönnuði úr Salvíu. Við leggjum mikið upp úr að taka vel á móti gestum með notalegri og glaðlegri aðventustemningu, kveikt verður á eldstæði úti í garði og boðið upp á heita jólaglögg og piparkökur. Svo er að sjálfsögðu hægt að kaupa íslenska hönnun í jólapakkann, finna aðventuskreytingu fyrir sig og sína eða næla sér í gómsæta Randalínu með kaffinu svo eitthvað sé nefnt“, sagði Hulda og tilhlökkunin leyndi sér ekki.
Vísindafólkið okkar – Yvonne Höller
Síðustu árin hafa gatnagerðargjöld verið felld niður af lóðum við tilbúnar götur á Grenivík. Mikil eftirspurn hefur verið og lausum lóðum er mjög farið að fækka. Enn eru þó nokkrar eftir, m.a. við Ægissíðu, Stórasvæði og Lækjarvelli.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árin 2023-2026 var lögð fram til síðari umræðu í bæjarstjórn og samþykkt þriðjudaginn 6. desember.
Áætluð rekstrarniðurstaða samstæðunnar (A- og B-hluta) árið 2023 er jákvæð um 228 milljónir króna sem er talsverður viðsnúningur til hins betra frá fyrra ári þegar niðurstaðan var neikvæð um 624 milljónir. Jafnvægi er í rekstri sveitarfélagsins og er gert ráð fyrir enn betri afkomu til ársins 2026.
Samtök atvinnulífsins og Starfsgreinasamband Íslands undirrituðu nýverið nýjan kjarasamning vegna starfa á hinum almenna vinnumarkaði. Þessa dagana er verið að kynna samninginn, niðurstaða atkvæðagreiðslu liggur fyrir síðar í mánuðinum. Flestir starfsmenn í fiskvinnsluhúsum Samherja og Útgerðarfélags Akureyringa á Dalvík og Akureyri eru í Einingu Iðju, sem er aðili að samningnum.
„Hreyfing og líkamsrækt hefur verið mitt geðlyf í mörg ár og þó að hvorugt sé lækning né 100% forvörn hefur hreyfingin hjálpað mér gríðarlega mikið,“ segir Inga María Ellertsdóttir forsprakki átaksins Á Pólinn fyrir jólin og stendur yfir um þessar mundir hjá Grófinni geðrækt á Akureyri. Þessi hreyfiáskorun felst í því að þátttakendur skrá niður þá vegalengd sem þeir fara, gangandi, hjólandi, á skíðum, í sundi eða hvernig svo sem þeir fara. „Og saman ætlum við að ferðast þá vegalengd sem samsvarar leiðinni frá Jólahúsinu í Eyjafjarðarsveit að Norður-Pólnum,“ segir hún. Þátttakendur hafa nú lokið þremur fjórða hluta leiðarinnar, en í heild er leiðin 2618 kílómetrar. Þátttakendur eru þeir sem stunda eða hafa stundað Grófina eða starfa þar.
Um 540 manns sóttu um aðstoð frá Velferðarsjóði Eyjafjarðarsvæðis nú fyrir jólin en lokað hefur verið fyrir úthlutun. Þetta er mun stærri hópur en sótti um aðstoð í fyrra en þá hafði samt orðið talsverð aukning á milli ára.
Veðurklúbbur Dalbæjar kom saman til fundar í gær 6 des. og í kjölfarið var send út eftirfarandi tilkynning.
Veðurklúbbur Dalbæjar. 6. Desember. 2022.
Fundurinn að þessu sinni var fámennur enda skellt á án fyrirvara af óviðráðanlegum ástæðum. Mættir voru. Haukur Haraldsson, Hörður Kristgeirsson, Kristján Loftur Jónsson og Bergur Þór Jónsson.
Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) ásamt starfsfólki sjúkrahússins standa fyrir hátíð á Glerártorgi laugardaginn 10. desember nk. milli kl. 14:00 og 16:00. Slík hátíð á Glerártorgi hefur verið árviss viðburður en féll niður sl. tvö ár vegna COVID-faraldursins.
Mikið álag er á HSN Akureyri vegna veikinda starfsfólks og gæti því reynst nauðsynlegt að forgangsraða erindum. Við biðlum til ykkar að sýna því skilning og tillitssemi.
Akureyrarbær auglýsir í dag byggingarrétt á Hlíðarbraut 4 (fyrir austan Ak-Inn) og óskar eftir umsóknum um lóðina sem er tæplega 6.500m2 en þar má byggja 4-5 hæðir auk bílakjallara. Bygginingarmagn er 7.6872m2 ofanjarðar og 2.562m2 neðanjarðar eins og segir i auglysingu.
Föstudaginn 9. desember mun Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, opna með formlegum hætti nýja aðstöðu þekkingarklasans á Hafnarstétt 1-3 á Húsavík
Vel búin reiðhjólageymsla hefur verið tekin í notkun við fiskvinnsluhús Útgerðarfélags Akureyringa á Akureyri. Sambærileg reiðhjólageymsla er við fiskvinnsluhús Samherja á Dalvík, sem notið hefur vinsælda meðal starfsfólks. Með slíkum geymslum vilja félögin auðvelda starfsfólki að hjóla í vinnuna og stuðla um leið að umhverfisvænni samgöngum.
Meirihluti skipulagsráðs Akureyrar hefur samþykkt að fela skipulagsfulltrúa að hefja vinnu við útfærslu útboðs- og úthlutunarskilmála fyrir Móahverfi með það að markmiði að hægt verði að auglýsa lóðir í fyrsta áfanga hverfisins í janúar næstkomandi.
Viðræður eru hafnar milli stéttarfélaganna Framsýnar og Þingiðnar annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar vegna PCC á Bakka um endurnýjun á sérkjarasamningi aðila sem rann út í lok nóvember.
Á þessum degi fyrir 40 árum var Íþróttahöllin á Akureyri tekin í notkun. Íþróttahöllin hefur frá upphafi sinnt fjölbreyttri starfsemi, s.s. skólaíþróttum, íþróttaæfingum, kappleikjum, útskriftum, sýningum, veislum og öðrum viðburðum.
Það er hætt við að þessi upphrópun muni heyrast víða á heimilinm hér norðanlands næstu viku eða kannksi vikur. Eftir frábæran hlýinda kafla í nóvembr sem m.a færði Akureyringum meðalhita sem var 3.5 stigum yfir meðaltali og þriðja heitasta nóvembermánuði frá þvi mælingar hófust er tíðarfarið færast í eðlilegt horf.
Frost er i kortunum svo langt sem menn sjá og það mun snjóa samkvæmt verðurspám, Það er nákvæmlega ekkert óeðlilegt við það og munum að það er ekkert til sem kalla má kalt veður bara illa klætt fólk.
Sala aðventutrjáa Skógræktarfélags Eyfirðinga er nú í fullum gangi „Við skutlum þeim tilbúnum með ljósunum á til viðskiptavina og sækjum aftur í janúar.,“ segir Ingólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri SE, en þessi þjónusta hefur verið í boði í mörg ár.