Yfirvofandi skortur á starfsfólki á SAk

Illa hefur gengið að ráða sérfræðinga til vinnu á Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) undanfarin ár og oft á tíðum eru engar umsóknir um auglýstar stöður. Þá hefur Vikudagur fjallað um yfirvofandi læknaskort á sjúkrahúsinu þar sem læknar eru komnir á aldur og nýir fást ekki í staðinn. Hildigunnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar og bráðasviðs á SAk, er í ítarlegu viðtali í Vikudegi og segir að unnið sé í því að bregð­ast við vandanum. Hún segir ennfremur að horfa þurfi til annarra heilbrigðisstétta á sjúkrahúsinu og nefnir dæmi um lífeindafræðinga og hjúkrunarfræðinga þar sem skortur blasir við. Lesa má ítarlegt viðtal við Hildigunni í prentútgáfu Vikudags.

-Vikudagur, 8. september.

Nýjast