Vortónleikar Kirkjukórs Húsavíkur

Hér er Kirkjukór Húsavíkur á léttu nótunum fyrir fáum árum. Mynd: JS
Hér er Kirkjukór Húsavíkur á léttu nótunum fyrir fáum árum. Mynd: JS

Hinir árlegu Vortónleikar Kirkjukórs Húsavíkur eru í Húsavíkurkirkju annað kvöld, fimmtudaginn 25. maí og hefjast kl. 20.00. Að venju er kórinn á léttu nótunum á Vortónleikunum og að þessu sinni einkennist dagskráin af kvikmynda- og söngleikjatónlist.

Stjórnandi er eins og áður Judit György og undirleik annast þau góðu Stórutjarnahjón Jaan og Marika Alavere. Og einsöngvarar með kórnum á þessum tónleikum eru ekki af verri endanum, þau Aðalsteinn Júlíusson, Ásta Magnúsdóttir og Ína Valgerður Pétursdóttir.

Aðgangseyrir er 1500 krónur. JS

Nýjast