Framsýn stéttarfélag stendur fyrir opnum fundi um starfslok og önnur málefni eftirlaunafólks á Fosshótel Húsavík á morgun, laugardag.
Helgi Pétursson, gjarnan kenndur við Ríó Tríó fer fyrir Gráa hernum, baráttusamtökum eftirlaunafólks. Hann mun fjalla um stöðu fólks á eftirlaunum á Íslandi.
Grái herinn hefur á síðustu misserum hlotið verðskuldaða athygli fyrir málefnalega og skarpa umræðu um stöðu eftirlaunafólks. Krafa Gráa hersins er: Virðing og réttlæti til handa eldra fólki.
María Axfjörð er Húsvíkingum að góðu kunn en hún mun fjalla um störf aldraðra. Einnig mun hún ræða það hvernig er að verða kominn yfir sextugt og verða fyrir atvinnumissi. Í því samhengi fjallar hún m.a. um atvinnuleit og atvinnumöguleika fólks á þessum aldri.
Þá mun Anna Sigrún Mikaelsdóttir fjalla um og kynna starfsemi Félags eldri borgara á Húsavík og nágrenni. Starfsemi félagsins hefur sjaldan eða aldrei verið öflugra en um þessar mundir.
Boðið verður upp á súpu, brauð, kaffi og te á fundinum.