Öldrunarheimili Akureyrar hafa fengið vínveitingaleyfi. Eins og Vikudagur greindi frá fyrr á árinu sótti framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar (ÖA) um vínveitingaleyfi fyrir öldrunarheimilin en um nokkurt skeið hefur staðið til að sækja um slíkt leyfi enda hafa kráarkvöld verið haldin að jafnaði einu sinni í mánuði sl. 10 ár auk hátíðarviðburða og þorrablóta.
„Áhersla hefur verið á sjálfræði og lífsgæði íbúa ÖA og að þeir njóti lífsgæða eins og aðrir þegnar samfélagsins. Kráarkvöld hafa verið haldin í Hlíð í um 15 ár, að jafnaði einu sinni í mánuði ,auk hátíðarviðburða og þorrablóta. Mikilvægur þáttur í starfsemi ÖA er að stuðla að ánægjulegum samverustundum og tilefnum til að ættingjar og aðrir komi og eigi þar góða samveru.
Til þess að einfalda innkaup, bæta þjónustuna og minnka fyrirhöfnina þegar kemur að kráarkvöldum og öðrum viðburðum sem fram fara hér innanhúss var sótt um leyfi til vínveitinga, líkt og mörg önnur hjúkrunarheimili hafa gert,“ segir á heimasíðu ÖA.