Hörður Jónasson frá Árholti á Húsavík, sem starfar í ferðaþjónustu m.a. sem rútubílstjóri, hefur birt eftirfarandi áskorun á sveitarstjórn Þingeyjarsveitar:
“Hverasvæðið á Þeistareykjum er fallegt en líka mjög viðkvæmt. Með bættum vegi að Þeistareykjum mun umferð þar aukast.
Svæðið tilheyrir sveitarfélaginu Þingeyjarsveit og það er brýnt að sveitarfélagið geri þær ráðstafanir sem þarf til að vernda svæðið, svo sem með stígum, böndum og annari stýringu. Til bráðabirgða væri kostnaðarlítið að setja niður hæla og strengja bönd.
Þarna er viðkvæmt samspil gróðurs, leirs, brennisteinsútfellinga og kraumandi leirhvera. Ef ekki verður gripið til aðgerða strax munu skemmdir hljótast af.
Skora á stjórn Þingeyjarsveitar að ganga í málið.”
Skrifar Hörður Jónasson. JS