Vill að seðlabankastjóri víki eftir niðurstöðu dóms

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir daginn vera gleðilegan fyrir Samherja og er ómyrk…
Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir daginn vera gleðilegan fyrir Samherja og er ómyrkur í máli í garð seðlabankastjóra. Mynd/Þorgeir Baldursson.

„Þetta er í samræmi við allt annað í öllu þessu ferðalagi. Þetta er fyrst og fremst mikill gleðidagur fyrir okkur og ég er þakklátur mínu starfsfólki,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri útgerðarfyrirtækisins Samherja, í samtali við Vikudag um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem hefur fellt úr gildi 15 milljóna króna stjórnvaldssekt sem Seðlabankinn lagði á fyrirtækið fyrir brot á gjaldeyrislögum. Seðlabankanum er einnig gert að greiða allan málskostnað.

„Það hefur aldrei neitt staðist sem Seðlabankinn hefur ásakað okkur um. Þeir hafa fengið fjölmörg tækifæri til að stoppa þetta mál og lágmarka okkar skaða. En þeir hafa alltaf haldið áfram og búið til nýjar og nýjar ástæður. Okkur hefur hins alltaf tekist að sýna fram á það að ásakanir Seðlabankans séu rangar,“ segir Þorsteinn.

Rúv greindi fyrst frá niðurstöðu dómsins í dag en í umfjöllun Rúv segir að málið hafi byrjað með húsleit Seðlabankans hjá Samherja árið 2012 og sérstakur saksóknari tók í framhaldi við málinu. Fyrir tveimur árum ákvað saksóknari að fella niður sakamál vegna þessara meintu brota en Seðlabankinn skoðaði í framhaldinu hvort ástæða væri til að beita stjórnvaldssektum. Síðasta sumar lagði Seðlabankinn síðan fram sáttatilboð sem hljóðaði upp á 8,5 milljóna króna sekt en Samherji hafnaði því. Í framhaldinu hækkaði Seðlabankinn upphæðina í 15 milljónir.

Segir málinu vera lokið

Þorsteinn segir að svona hlutir megi ekki endurtaka sig. „Það má ekki gerast að það sé trekk í trekk búnar til nýjar ástæður og menn hika ekki við að falsa gögn og fara með inn í réttarkerfið. Menn verða að hafa það í huga að öllum gögnum hefur alltaf verið haldið frá okkur og því hefur okkur ekki tekist að verja okkur fyrr en löngu seinna."

Hann lítur svo á að málinu sé lokið og að Seðlabankinn muni ekki fara með málið til Hæstaréttar. „Ég gef mér það að loksins sé þessu máli lokið og lít ekki á það sem möguleika að málið fari fyrir Hæstarétt,“ segir Þorsteinn.

"Menn hafa þurft að víkja fyrir minni sakir"

Spurður um stöðu seðlabankastjóra, Más Guðmundssonar, er Þorsteinn ómyrkur máli og svarar því játandi þegar hann spurður hvort hann telji seðlabankastjóra eiga að víkja. „Hann hlýtur að vera stoppaður núna. Mér finnst skömm að því að maðurinn sitji í stólnum. Menn hafa þurft að víkja fyrir minna sakir. Þetta er búið að valda miklu tjóni fyrir fyrirtækið,“ segir Þorsteinn. 

Nýjast