Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands hefur ritað bréf til bæjaryfirvalda á Akureyri þar sem hann fyrir hönd Flugfélagsins hvetur bæinn til að bjóða upp á strætóferðir til og frá Akureyrarflugvelli. Í bréfinu eru samgöngur þar á milli gagnrýndar og sagðar ábótavant eins og staðan er í dag.
„Fyrir flugfarþega er mikilvægt að góðir samgöngumöguleikar séu í boði til og frá flugvelli enda í fæstu tilfellum lokaáfangastaður farþega flugvöllurinn sjálfur. Á Akureyrarflugvelli er þessum möguleikum verulega ábótavant. Engin leið SVA fer á Akureyrarflugvöll þrátt fyrir að leiðarkerfið sé töluvert umfangsmikið og nái til flesrtra staða bæjarfélagsins.
Þá býður Strætó upp á ferðir víða um Eyjafjörð en engin tenging er við þessar ferðir við Akureyrarflugvöll. Við hjá Flugfélagi Íslands viljum hvetja bæjarráð til þess að beita sér fyrir því að úr þessum vanköntum á samgöngum við Akureyrarflugvöll verði bætt hið fyrsta," segir í bréfinu sem barst til bæjaryfirvalda í lok apríl.
Bæjarráð Akureyrar hefur vísað erindinu til umhverfis-og mannvirkjaráðs.