„Veðrið sannarlega staðið með okkur“

Stefnt er að því að nýtt sundlaugarsvæði verða klárt í byrjun sumars og nýjar rennibrautir verði opn…
Stefnt er að því að nýtt sundlaugarsvæði verða klárt í byrjun sumars og nýjar rennibrautir verði opnaðar í júní. Mynd/Þröstur Ernir

Framkvæmdir við endurbætur á Sundlaug Akureyrar ganga vel að sögn Ingibjargar Isaksen, formanns íþróttaráðs Akureyrarbæjar. Ingibjörg segir verkið á áætlun og að veðurblíðan í upphafi árs hafi hjálpað til. „Við byrjuðum seinna en gert var ráð fyrir en veðrið hefur sannarlega staðið með okkur. Ef allt gengur eftir geri ég ráð fyrir að framkvæmdum ljúki í júní og rennibrautirnar verði þá opnaðar,“ segir Ingibjörg.

Alls verðar settar upp þrjár nýjar rennibrautir og stiginn upp í þær tvær stærri verður yfirbyggður. Í staðinn fyrir vaðlaugina kemur tvískiptur pottur þar sem annar hlutinn verður nuddpottur.  Á sama tíma mun allt svæðið vera lækkað í sömu hæð og umhverfi lauganna. Þá verður gert nýtt sólbaðsvæði enda mun turninn koma þar sem sólbaðssvæðið var áður.

Áætluð kostnaðaráætlun með viðhaldi í endurbætur á sundlaugarsvæðinu eru rúmlega 300 milljónir króna. Upphaflega var áætlað að heildarkostnaður við framkvæmdirnar yrðu 200 milljónir, þar af tæplega 100 milljónir í nýja rennibraut. Vegna viðbótarframkvæmda hefur kostnaðurinn hins vegar hækkað um ríflega hundrað milljónir.

Nýjast