Hjálmar Bogi Hafliðason varaþingmaður Framsóknarflokks sem sækist eftir 2.-4. sæti á lista flokksins í Norðausturkjördæmi ritaði pælingu á Facebooksíðu sína um flugvöllinn í Vatnsmýri sem kynnti undir heitar umræður. „...ok, meirihluti borgarstjórnar vantar land undir íbúðabyggð í Reykjavík og vill þess vegna losna við flugvöllinn úr Vatnsmýrinni.
Hvað ef við tökum golfvellina á Korpúlfsstöðum og Grafarholti undir byggingarland? Málið leyst...“ ritar hann.
Honum er þá bent á að það vanti lóðir miðsvæðis, til að þétta byggðina. En þá hitnar í kolunum. Haukur Arnþórsson doktor í rafrænni stjórnsýslu kemur inn í spjallið og biður Hjálmar Boga um að „...hætta þessu rugli um flugvöllinn...“ og jafnframt að snúa sér að því sem varðar almannahag.
Þegar Hjálmar Bogi spyr hvort flugvöllurinn í Vatnsmýrinni – „í höfuðborg Íslands“ varði ekki almannahag þá skrifar Haukur: „Viltu hætta þessu hræðsluáróðursrugli. Það er í Trump stíl. Rétt yfirvöld og Flugleiðir svo einhverjir séu nefndir vinna að framtíðarlausn flugvallarmála SV-hornsins - og augun beinast að Hvassahrauni. Málið er fyrst og fremst faglegt. Pólitískur æsingur og pólitísk aðkoma spillir bara fyrir. Og beinlínis sviksamlegt að gera málið að kosningamáli. Það brennur nú eitthvað annað meira á fólkinu fyrir norðan !!!“
Haukur er alls ekki hættur og segir m.a. að það sé óheiðarlegt að etja landsbyggðinni gegn höfuðborgarbúum og þykir Framsóknarflokkurinn vera kominn „í algeran skít með kosningamál - ef hagsmunir heimilanna, samvinnustefna, afnám verðtryggingar o.s.frv. (sem var á stefnuskránni fyrir síðustu kosningar) - er allt gleymt og grafið“.
„Hræðsluáróður? Hvað áttu við? Það að ræða flugvöllinn í höfuðborg Íslands getur varla talist óskynsamlegt? Eðli málsins samkvæmt snýst þetta um höfuðborgina þar sem flugvöllurinn er staðsettur ásamt nánast allri opinberri þjónustu!,“ svarar Hjálmar Bogi.
Haukur kemur þá inn á að flugallarmálið geti hugsanlega gefið Framsókn atkvæði í kjördæmi þar sem atkvæðavægi er meira en hann telur að verið sé að blekkja kjósendur með því að ræða Reykjavíkurflugvöll sem kosningamál. Málið sé í eðlilegum farvegi hjá réttum yfirvöldum og „enginn stjórnmálamaður mun hrófla við t.d. lokun neyðarbrautarinnar eftir kosningar. Því það er ekki hægt, rétt hefur verið að því staðið.“
Hjálmar Bogi spyr þá hvort það sé ekki rétt að meirihluti Reykvíkinga vilji hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni og bætir við: Það er nú barnalegt af þér að gera málið að einkamáli Framsóknarflokksins, það er ekki þannig.Þú gleymir einu meginatriði, að Reykjavík er höfuðborg Íslands, höfuðborg allra landsmanna, ekki bara Reykvíkinga. Gleymdu þessu aldrei“.
Aftur líkir Haukur málflutningi Hjálmars Boga við aðferðir Donald Trump forsetaframbjóðanda Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum. „Hvað gengur þér til? Ertu nokkuð að etja fólki saman til þess að ná því til fylgis við þig? Að nota hræðsluáróður eins og Trump í stað þess að ræða það sem ræða þarf?“
Við svo búið fær Hjálmar Bogi nóg af Trump samlíkingum og skrifar: „Svo frábið ég mér svona heimskulega athugasemd að líkja manni við Donald Trump, það er beinlínis móðgun og ég satt best að segja átta mig ekki á því hvernig þér dettur slík vitleysa í hug nema með eitthvað annarlegt í huga!
Staðsetning flugvallar á höfuðborgarsvæðinu, þar sem nánast öll þjónusta íslenska ríkisins er hlýtur að vera mál sem varðar alla íbúa landsins, eða hvað?“