Vaðlaheiðargöng milljarða fram úr áætlun

Vaðlaheiðargöng eru komin 44 prósent fram úr áætlun og viðbótarfjárþörf verkefnisins nemur 4,7 milljörðum. Þetta kemur fram í minnisblaði sem kynnt var á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Ríkisstjórnin samþykkti að lána þessa upphæð en jafnframt að gerð yrði úttekt á framkvæmdinni og hvað fór úrskeiðis. Rúv greindi fyrst frá málinu.

Áætlað er að gegnumslag verði í apríl og að göngin verði opnuð síðla ársins 2018.

Nýjast