Greint er frá því á Facebook-síðu Vaðlaheiðarganga að menn séu komnir í gegnum lokakafla ganganna. Könnunarhola hafi farið í gegnum haftið, sem sé 37,5 metra langt og staðfesti hún að göngin séu á réttum stað.
Í næstu viku, miðvikudaginn 11. mars, verður Háskóladagurinn haldinn á Akureyri og okkur lék forvitni á að vita aðeins meira um viðburðinn. Við tókum því Sólveigu Maríu Árnadóttur, verkefnastjóra samfélagsmiðla og samskipta, og Silju Jóhannesar Ástudóttir samskiptastjóra tali, en báðar starfa við Háskólann á Akureyri.
„Það er forgangsmál nú á þessum tímapunkti að efla getu varaflugvallakerfisins til að það geti sinnt sínu hlutverki. Allt snýst þetta um flugöryggi, það er stóra málið,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður og flugumferðarstjóri. Síðastliðinn fimmtudag, 26. febrúar lentu alls átta farþegaþotur á Akureyrarflugvelli eftir að Keflavíkurflugvöllur lokaðist óvænt vegna veðurs. Þá lentu fimm þotur á Reykjavíkurflugvelli og þrjár á Egilsstaðaflugvelli. „Það var mikill léttir að verða vitni að því hversu vel þetta gekk alls saman. Það hríslaðist um mig ánægjutilfinning þegar þetta var yfirstaðið, því er ekki að neita.“
Eik fasteignafélag hefur óskað eftir álits skipulags- og umhverfisnefndar Hörgársveitar á beiðni félagsins um breytingu á aðal- og deiliskipulagi Lónsbakka fyrir lóðirnar Lónsbakka og Dvergastein lóð.
Mæðgurnar Fríða Freydís og Ásta Birna brautskráðust saman úr stjórnun frá Háskólanum á Akureyri á Vetrarbrautskráningarhátíð háskólans sem var haldin í Hátíðarsal háskólans 14. febrúar.
„Það á eftir að koma í ljós á næstunni hvort og þá hverjir fylgi honum. Það skiptir eflaust talsverðu máli varðandi gengið í komandi kosningum,“ segir Grétar Þór Eyþórsson prófessor við Háskólann á Akureyri. „Spennan nú snýst svolítið um hvort hann nái með sér hluta af baklandi flokksins. Þá getur ýmislegt gerst.“
Sveitarfélagið Norðurþing stendur sterkt og mikil tækifæri til uppbyggingar. Á árinu 2024 var fjárfest fyrir um 500 milljónir og ríflega 700 milljónir árið 2025 í A-hluta. Það var mögulegt vegna aga í rekstri og innkomu síðastliðin ár. Engin ný lán hafa verið tekin á kjörtímabilinu fyrren nú þegar við verðum fyrir alvarlegu tekjufalli og fimmtíu milljónum minna í kassann á mánuði. Það er staðreynd sem við verðum að horfast í augu við af ábyrgð og festu. Slíkar aðstæður kalla á erfiðar ákvarðanir. Við megum þó aldrei gleyma því að á bak við hverja tölu eru störf fólks, fjölskyldur og þjónusta sem skiptir íbúa okkar miklu máli. Lántaka var nýlega samþykkt samhljóða og í samræmi við fjárhagsáætlun til að ljúka stórum framkvæmdum sem þegar eru hafnar eða á teikniborðinu eins og félagsmiðstöð og frístund við Borgarhólsskóla og hafnarframkvæmdir við Suðurgarð. Lántaka er varasöm ef engin langtímaáætlun er til eða pólitísk skammtímahugsun ræður för.
„Ég er ótrúlega stolt og ánægð af okkar starfsfólki og þeim árangri sem við höfum náð nú þegar við fögnum fyrstu fimm árunum í okkar starfsemi. Þessi ár hafa verið fjölbreytt, gefandi og lærdómsrík,“ segir Sigrún V. Heimisdóttir eigandi og framkvæmdastjóri Heilsu- og sálfræðiþjónustunnar á Akureyri. Í tilefni tímamótanna verður opið hús hjá stofunni í Glerárgötu 34, annarri hæð á morgun, föstudaginn 6. mars þar sem kostur gefst á að kynna sér starfsemina og þiggja veitingar. „Við erum á sama tíma að taka vaxtakipp og stækka,“ bætir hún við.
Fyrir stjórn Hafnasjóðs Norðurþings liggur krafa frá Gentle Giants upp á tæplega 91 milljón króna. Kröfan er gerð í kjölfar dóms Landsréttar, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að innheimta farþegagjalda hafnarsjóðs á árunum 2018–2025 hafi ekki staðist lög.