Markmiðið með þessu var að styðja við starfsfólk skóla, fræðslustofnana og stjórnendur íþrótta- og æskulýðsstarfs til að veita nemendum stuðning og stuðla þannig að velferð. Þessi samantekt var unnin í samstarfi við samráðshóp sem settur var á laggirnar vegna efnahagsástandsins. Í þeim hópi sitja fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Félagi íslenskra framhaldsskóla, Skólameistarafélagi Íslands, Kennarasambandi Íslands, Félagi náms- og starfsráðgjafa, Menntasviði Reykjavíkurborgar og Heimili og skóla. Úrræðin er að finna á vefsíðu ráðuneytisins, sem og leiðbeiningar sérstaklega ætlaðar börnum og ungmennum um líðan við erfiðar aðstæður.
Menntamálaráðuneyti vill enn fremur leggja áherslu á að víða er sérfræðiþjónusta og þekking til staðar innan skóla, fræðslustofnana, íþrótta- og æskulýðsfélaga, í sveitarfélaginu og í nærsamfélaginu sem hægt er að nýta. Virk samskipti skóla, íþrótta- og æskulýðsfélaga og heimila eru sérstaklega mikilvæg nú. Mikilvægt er að stjórnendur skoði hvaða leiðir eru fyrir hendi til að takast á við núverandi aðstæður á sem uppbyggilegastan hátt. Þar skiptir miklu máli að sem flestir taki höndum saman og stuðli þannig að velferð barna og ungmenna í víðum skilningi. Víðs vegar um landið hefur þegar verið unnið gott starf til að gera okkur betur kleift að takast á við það ástand sem nú er uppi og hvetur menntamálaráðuneyti til þess að slíkri vinnu verði fram haldið.