„Úr öllum takti við íbúðasvæði í grenndinni“

Hverfisnefnd Oddeyrar leggst alfarið gegn því að deiliskipulagi sé breytt á hafnasvæði sunnan Glerár á Akureyri á meðan ekki er hægt að breyta á öðrum stöðum á Oddeyri vegna vinnu við fyrirhugað rammaskipulag. Hafnasamlag Norðurlands hefur sótt um breytingar á deiliskipulagi fyrir lóðir við Skipatanga. Skipulagstillagan var auglýst frá 14. desember 2016 með athugasemdafresti til 25.
janúar 2017. Hverfisnefnd Oddeyrar segir í athugasemd að svo virðist sem vinnubrögðin séu þannig að þarna sé landnotkun breytt í bága við gildandi skipulag (gámastæðum raðað á athafnasvæði fiskihafnar) og skipulaginu breytt eftir á.

„Nauðsynlegt er að taka afgerandi afstöðu til starfsemi á hafnasvæðum. Gámasvæði við Hjalteyrargötu er þannig úr öllum takti við íbúðasvæði í
grenndinni og það verður að fara annað. Farið er fram á að deiliskipulagstillagan verði ekki tekin til efnislegrar afgreiðslu fyrr en búið er að klára ferlið sem hófst með gerð rammaskipulagsins,“ segir í athugasemd hverfisnefndar.

Nýjast