Uppsagnir á Raufarhöfn

Raufarhöfn. Mynd/ Norðurþing
Raufarhöfn. Mynd/ Norðurþing

Öllum tíu starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá Fiskverkun Hólmsteins Helgasonar á Raufarhöfn en fyrirtækið fékk ekki úthlutað sértækum byggðakvóta. GPG fiskverkun á Húsavík fékk úthlutað öllum þeim kvóta á stjórnarfundi Byggðastofnunar en GPG er einnig með starfsemi á Raufarhöfn og Stykkishólmi. Þetta kom fram í Fréttablaðinu í morgun.

Nokkur kergja er í heimafólki vegna málsins sem óttast að þetta verði til þess að fólk flytji í burtu. Raufarhöfn hefur verið skilgreind sem brothætt byggð og hafa margvíslegar aðgerðir stjórnvalda beinst að því að halda sjávarþorpinu í byggð. 189 einstaklingar voru með lögheimili á Raufarhöfn í byrjun árs 2016 og því ljóst að 10 uppsagnir er stór biti fyrir þetta litla samfélag.

Forsvarsmenn fyrirtækisins Hólmsteinn Helgason ehf. keyptu eina fjölbýlishúsið á Raufarhöfn og einnig hótel á staðnum. Fyrirhuguð var mikil uppbygging á Raufarhöfn en fyrirtækið hefur starfrækt saltfiskverkun í þorpinu um skeið.

Ákvörðun um að semja við GPG fiskverkun um að veiða þann sértæka byggðakvóta sem er til skiptanna á Raufarhöfn var tekin á stjórnarfundi Byggðastofnunar. „Miðað við þær forsendur sem voru í umsóknum aðila þá var tekin ákvörðun um að semja við GPG. Við reyndum, í samvinnu við atvinnuþróunarfélag Þingeyinga að fá menn til að vinna saman en það gekk ekki upp. Þá var bara komið að því að taka ákvörðun og hún er þessi,“ sagði Sigurður Árnason, sérfræðingur Byggðastofnunar í samtali við Fréttablaðið.


Nýjast