Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra mun í dag friðlýsa hluta jarðarinnar að Hrauni í Öxnadal sem fólkvang og Arnarnesstrýtur á botni Eyjafjarðar. Hún mun undirrita fyrri friðlýsinguna í gamla bænum að Hrauni kl. 15:00 en þá síðari í Lísukaffi á Hjalteyri kl. 16:30. Friðlýst svæði Hrauns í Öxnadal mun ná yfir 2.286 hektara jarðarinnar. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda svæðið til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu. Verndargildi svæðisins byggir auk þess á því að landslag og náttúrufar, sérstaklega jarðmyndanir, er mjög fjölbreytt og eru þar m.a. mikilvægar minjar um horfna búskaparhætti. Verndargildi svæðisins tengist einnig bókmenntaarfi þjóðarinnar, en þar fæddist skáldið og náttúrufræðingurinn Jónas Hallgrímsson.
Arnarnesstrýtur eru friðlýstar til að vernda megi einstök náttúrufyrirbrigði sem felst í myndun hverastrýtnanna, efnasamsetningu, útliti og lögun ásamt lífríki, þar með talin örveruvistkerfi sem þar þrífst við óvenjulegar aðstæður. Hverastrýturnar eru allt að 10 metra háar og standa á 25 metra til 45 metra dýpi. Samkvæmt friðlýsingunni eru togveiðar, netalagnir og línuveiðar bannaðar við náttúruvættið og á jaðarsvæði þess.