Tveir á slysadeild eftir hálkuslys

Fljúgandi hálka er víðast hvar á Akureyri. Mynd/Lögreglan
Fljúgandi hálka er víðast hvar á Akureyri. Mynd/Lögreglan

Nú þegar hefur verið tilkynnt um tvö hálkuslys á Akureyri og tveir fluttir á slysadeild með áverka á höfði. Þetta kemur fram á Facebooksíðu lögreglunnar á Akureyri.

„Við viljum senda þetta út til að hvetja fólk til að fara varlega í þessum aðstæðum. Hitinn er kominn upp í 10 stig hér á Akureyri og svell víða á götum, bifreiðastæðum og gangstígum. Ástandið er svipað víða um embættið. Unnið er að því að gera þetta greiðfærara en það tekur allt tíma,“ segir í síðu lögreglunnar. 

Nýjast