Fyrsta skóflustungan að stækkun Könnunarsögusafnsins á Húsavík var tekinn við hátíðlega athöfn á laugardag að viðstöddu fjölmenni. Það er reyndar réttara að segja að 12 fyrstu skóflustungurnar hafi verið teknar því alls voru 12 einstaklingar þess heiðurs aðnjótandi.
Við athöfnina tók fyrstur til máls Örlygur Hnefill Örlygsson sem starfrækir safnið. „Á tunglinu hafa gengið 12 einstaklingar og við erum með einn þeirra með okkur hér í kvöld. Okkur fannst því við hæfi þegar við tökum þessa skóflustungu að hér yrðu 12 einstaklingar, einn sem hefur gengið á tunglinu og þá 11 sem myndu tákna hina geimfaranna og vísindafólk og landkönnuði framtíðarinnar,“ sagði hann áður en hann kynnti á svið Charles Duke.
Charles Duke er stórt nafn í sögunni en hann var hluti af leiðangri Apollo 16 árið 1972. Hann dvaldi á yfirborði mánans í tæpa þrjá sólarhringa ásamt John W. Young. Duke varð þar með tíundi og jafnframt yngsti maðurinn til að ganga á tunglinu. Duke sem er 81 árs og búsettur í Texas í Bandaríkjunum er sestur í helgan stein en hann hefur dvalið hér á landi ásamt konu sinni Dorothy Claiborne undanfarna daga í boði Könnunarsögusafnsins.
Hann byrjaði á að lýsa því yfir að það væri ánægjulegt að vera kominn aftur til Íslands eftir 50 ár. Hluti af undirbúningi tunglferða Bandaríkjamanna fyrir 50 árum voru tvær æfingaferðir geimfaraefna 1965 og 1967 og var Duke í hinni síðari.
Hann sagði að ferðin hingað til væri búin að vera afar ánægjuleg og að Ísland byggi yfir einhverri mest töfrandi jarðfræði sem hann hefði upplifað. Ekki slæm lýsing það frá manni sem hefur gengið á tunglinu. Þá sagðist hann hlakka mikið til að sjá þessa nýju viðbót við Könnunarsögusafnið verða að veruleika. Hann stillti sér síðan upp og tók fyrstu skóflustunguna ásamt 11 börnum af svæðinu við mikinn fögnuð viðstaddra.
Jill Esposito, starfandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi ávarpaði samkomuna. Hún þakkaði sérstaklega þá samvinnu sem Bandaríska sendiráðið hafi átt við Könnunarsögusafnið og hlakkaði til frekara samstarfs. „Við munum halda áfram að ganga veginn, þar sem enginn maður hefur gengið áður,“ sagði hún og uppskar mikið lófaklapp.
Sævar Helgi Bragason eða sólmyrkva Sævar eins og hann er gjarnan kallaður lét sig ekki vanta. Hann hrósaði Örlygi Hnefli í hástert fyrir seigluna að hafa byggt upp þetta glæsilega safn. Hann sagðist ekki geta staðist freistinguna úr því að hann væri með orðið að fræða svolítið leiðinni. „Okkur Örlygi finnst sennilega ekkert merkilegra en ferðalag manna eins og Charles Duke til tunglsins,“ sagði hann. Því næst sýndi hann með aðstoð tveggja uppblásinna bolta og sjálfboðaliða úr hópi barnanna hvað fjarlægðin á milli jarðarinnar og tunglsins er hlutfallslega mikil. Það gerði hann með miklum leikrænum tilburðum og innlifun sem honum einum er lagið áður en boðið var upp á grillaðar pylsur.
Nánar verður fjallað um þennan viðburð og ferðalag Charles Duke og hans föruneyti í Skarpi sem kemur út á fimmtudag.