Þú skiptir máli: Söngleikur Tónasmiðjunnar í uppsiglingu

Þriðjudagskvöldið 4. júlí s.l. var þriðja opna fræðslu og kaffihússkvöld forvarnarsamtakanna „ÞÚ skiptir máli“ hér á Húsavík haldið í Bjarnahúsi. Í upphafi var ljúfur söngur og spil þeirra frændsystkina, Bylgju Steingrímsdóttur og Elvars Bragasonar.

Í kjölfarið fylgdi erindi Elvars Bragason forvarnarfulltrúa sem bar heitið „ÞÚ skiptir máli“ Hann fjallaði þar um, „það læra börnin sem fyrir þeim er haft“. Einnig talaði hann um letjandi og hvetjandi áhrifa og áhættuþætti forvarna er viðkemur uppvexti barns m.a. hversu mikilvægt það er hverju barni að alast upp við samveru, aga, ást og kærleika frá foreldrum.Eftir fræðslu Elvars var svo reynslusaga frá vini í bata.

Slík fræðslu og kaffihússkvöld hafa fengið mjög gott orð á sig fyrir uppbyggilega, fræðandi og góða samverstund, en slík kvöld verða fyrsta þriðjudagskvöld hvers mánaðar, næst þann 1. ágúst n.k. og eru allir hjartanlega velkomnir.

Undanfarnar vikur hafa samtökin unnið mikið og gott starf með fræðslu og forvarnir fyrir yngri flokka Völsungs í knattspyrnu endurgjaldslaust og höfum við nú þegar hitt 7., 6., 5., og 4. flokk bæði kk og kvk, spjallað við þau um forvarnir t.d. einelti, fíkn og lífsleikni af ýmsu tagi en á næstu vikum munum við klára alla yngri flokkana. Það er búið að vera mjög gefandi að hitta þessa krakka og höfum við bara fengið góð viðbrögð frá krökkunum sem og starfsfólki Völsungs og viljum við þakka þeim kærlega fyrir að taka vel á móti okkur.

N.k. miðvikudagskvöld 26. júlí kl 20:00 verður sýning á söngleiknum „Lífið er leikur“ í sal Borgarhólsskóla en þetta er afrakstur af fyrsta námskeiði Tónasmiðjunnar sem er starfrækt af samtökunum. Starfið hófst í júní og hafa krakkarnir unnið vel s.l. 7 vikur að uppbyggingu á þessari sýningu, þar sem blandað er saman forvörnum, tónlist, leik og lífsleikni en það endurspeglast einnig í söngleiknum okkar en handrit að sýningunni er eftir Elvar Bragason.

Sumir þessara krakka hafa aldrei stigið á svið fyrir framan fólk með þessum hætti, svo það sýnir styrk þeirra að taka þátt í þessari sýningu því að þau geta allt sem þau ætla sér þessir snillingar. Það er frítt inn á þessa sýningu okkar og vonumst við til að sjá sem flesta.

Fh. Forvarnarsamtakanna ÞÚ skiptir máli,

Elvar Bragason, forvarnarfulltrúi

Nýjast